Fréttir

Vornámskeið Framvegis

18 des. 2020

Námskeið Framvegis á vorönn 2021 verða að vanda fjölbreytt.
Þann 11. janúar verður opnað fyrir skráningu á vefsíðu Framvegis, www.framvegis.is, en einnig verður hægt að skrá sig í síma 581 1900.

Hægt er að kynna sér námskeiðin sem verða í boði í tímaritinu Sjúkraliðanum sem kom út í desember.
Blaðið er nú aðgengilegt á netinu hér – námskeiðin eru kynnt á bls. 28.

Sjúkraliði hefur rétt á að stunda viðurkennt sérnám varðandi starf sitt eða sækja framhalds- eða endurmenntunarnámskeið
og skal hann halda föstum launum með fullu vaktaálagi meðan slíkt nám varir.

Nánari upplýsingar um símenntun og framhaldsnám er að finna hér. Upplýsingar um menntasjóði félagsins er að finna hér.

 

Til baka