Samkomulag við Ísafold undirritað
3 apr. 2014
Samkomulag hefur náðst milli Sjúkraliðafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Garðabæjar um laun sjúkraliða sem starfa á hjúkrunarheimilinu Ísafold.
Með samkomulaginu færast sjúkraliðar af kjarasamningi félagsins við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu yfir á kjarasamning félagsins við sveitarfélögin.
Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. mars 2013.
Kynningarfundur verður með sjúkraliðum á Ísafold 4. apríl kl. 14:00 og greidd verða atkvæði um samninginn að því loknu.