Fréttir

Morgunverðarfundur um fjöldkylduvænt samfélag

1 jún. 2015

nam7

 

 

Minnum á fundinn í BSRB húsinu í fyrramálið þar sem fjallað verður um fjölskylduvænt samfélag.

Fundurinn er ætlaður formönnum aðildarfélaga BSRB, stjórnarmönnum aðildarfélaga, starfsfólki og trúnaðarmönnum. Stutt innlegg í upphafi fundar munu flytja Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB en hún mun fjalla um tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar um styttingu vinnuvikunnar og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, mun vera með hugleiðingar um hvað felst í fjölskylduvænna samfélagi.

Samhliða þessu er ætlunin að ræða við fundargesti hvað felst í hugmyndum BSRB um fjölskylduvænt samfélag. Hvaða leiðir er árangursríkastar til að byggja upp fjölskylduvænt samfélag; stytting vinnuvikunnar, sveigjanlegri vinnutími, bætt fæðingarorlofskerfi, sveigjanleg starfslok o.fl.

Markmiðið með fundinum er þannig að fá fram ólík sjónarmið félagsmanna til að skerpa á sýn BSRB til málefnisins.

Fundurinn verður haldinn á 1. hæð að Grettisgötu 89 þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 8:30-10:00 og verður léttur morgunverður í boði

Til baka