Fréttir

Fjölskyldan og barnið 2019

9 sep. 2019

Ráðstefnan Fjölskyldan og barnið verður haldin á vegum kvenna- og barnasviðs föstudaginn 4. október á Icelandair Hótel Reykjavík Natura.

Í ár verður sjónum beint að því frábæra rannsókna- og gæðastarfi sem á sér stað á Landspítala.
Auk þess mun Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í Háskóla Íslands fjalla um nýjustu niðurstöður rannsóknar um áfallasögu kvenna og Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu mun fjalla um niðurstöður nýjustu rannsókna hjá þeim.
Ráðstefnan er öllum opin, skráning er hafin á heimasíðu ráðstefnunnar hér. Skráningu lýkur 1. október.

 

 

Til baka