Fréttir

„Ég á erfitt með að átta mig á þessari útfærslu námsins“

19 sep. 2018

C3BA6677A3B8A60EEA448C4489735C5483058EDC578B8CFF45080D1C7608EBD9 713x0Í viðtali við Stöð 2 og Vísi í gær lýsti formaður Sjúkraliðafélags Íslands furðu sinni yfir að reynt sé að höfða til markhópa utan heilbrigðisgeirans til að hvetja fleiri til að sækja nám í hjúkrunarfræði.

Til stendur að bjóða upp á nýja og styttri námsleið við Háskóla Íslands næsta haust, sem aðeins býðst þeim sem þegar hafa háskólapróf.

Sjúkraliðanám er kennt á framhaldsskólastigi og gætu sjúkraliðar því ekki nýtt sér hina nýju námsleið sem Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands hyggst bjóða upp á haustið 2019. Aðeins verður boðið upp á námið ef fjárveiting fæst en það gæfi þeim, sem þegar hafa háskólapróf í öðrum greinum, kost á að ljúka námi í hjúkrunarfræðum á skemmri tíma en ella. 

Það yrði kennt á vor-, sumar- og haustmisseri og hugsanlega yrðu nemendur að verja við það lengri tíma til að uppfylla kröfur um klínískt nám að því er fram kemur á Facebook-síðu deildarinnar í gær. Að öðru leyti muni frekari upplýsingar um námið ekki liggja fyrir fyrr en í janúar. Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands kveðst undrandi yfir því að reynt sé að höfða til markhóps með bakgrunn úr greinum utan heilbrigðisstéttarinnar. 

„Ég á erfitt með að átta mig á þessari útfærslu námsins, ef að það á að fara að gjaldfella hjúkrunarfræðinámið með þessum hætti. Ég sé ekki alveg að það geti gengið upp að geta boðið háskólamenntuðum einstaklingi styttra nám í hjúkrun en ella,” segir Sandra. „Það er miklu vænlegra til árangurs að horfa til sjúkraliða og reyna að greiða þeim þá frekari leið inn í hjúkrunarfræðina ef að það á að horfa til þess að reyna að fjölga hjúkrunarfræðingum.”

Frekar en að leita til annarra markhópa væri eðlilegra að mati Söndru að hlúa betur að þeim sem þegar starfi í greininni, ekki síður í ljósi þess að þegar starfi margir menntaðir hjúkrunarfræðingar á öðrum vettvangi en við hjúkrun.

„Horfa til þess að reyna að skapa þessum heilbrigðisstéttum, sjúkraliðum, hjúkrunarfræðingum, betri starfsskilyrði og betra vinnuumhverfi. Til dæmis með styttri vinnuviku eða betri skilyrðum þannig að álagið á þessum starfsstréttum sé viðunandi. Það er flótti út úr stéttinni vegna þess að álagið hefur reynst of mikið,” segir Sandra.

Til baka