Fréttir

Desemberuppbót 2018

14 nóv. 2018

peningarStarfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember 2018.

Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall, sjá nánar í viðkomandi kjarasamningi.

Tímavinnufólk þarf að hafa skilað 1504 dagvinnustundum á tímabilinu 1. janúar til 31. október til að fá 100% desemberuppbót. Tímavinnustarfsmaður sem vinnur færri klukkustundir á tímabilinu fær greitt hlutfallslega samkvæmt því. 

Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé.
 
Sjúkraliðar sem starfa hjá ríkinu og sjálfseignarstofnunum frá greiddar 89.000 kr., hjá Reykjavíkurborg 97.100 kr. og hjá sveitarfélögunum 130.698 kr.

Til baka