Fréttir

Styrkja þarf heilbrigðiskerfið og greiða framlínufólki álag

10 ágú. 2021

Styrkja þarf heilbrigðiskerfið með auknum fjárframlögum og umbuna framlínufólki með álagsgreiðslum til að bregðast við miklu álagi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í minnisblaði sem BSRB hefur sent stjórnvöldum.

Bandalagið leggur þunga áherslu á brugðist verði við gríðarlega erfiðri stöðu heilbrigðiskerfisins. „Undanfarna 18 mánuði hefur verið mikið álag á almannaþjónustunni. Starfsfólk hefur tekið að sér aukin, flóknari og breytt verkefni sem hafa krafist mikils af þeim. Bregðast verður strax við gríðarlegu álagi á heilbrigðiskerfið, sem er nú komið yfir þolmörk, með auknum fjárveitingum svo hægt sé að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks og halda uppi viðunandi þjónustustigi,“ segir meðal annars í minnisblaði BSRB.

Bandalagið telur brýnt að áfram verði tekist á við faraldurinn þannig að áherslan sé á líf og heilsu og að tekið verði mið af bestu sérfræðiþekkingu hverju sinni í stað þess að sóttvarnaraðgerðir verði að pólitísku bitbeini í aðdraganda þingkosninga.

Þá er kallað eftir því að stjórnvöld viðurkenni mikilvægt framlag framlínustarfsfólks í baráttunni gegn heimsfaraldrinum. Þar sé til dæmis um að ræða fólk sem sé í nánum samskiptum við skjólstæðinga sína og því í aukinni smithættu. „Mikill fjöldi launafólks hefur lagt sitt af mörkum til að vernda heilsu og líf, veita velferðarþjónustu og halda skólakerfinu gangandi. Langvarandi álag hefur verið á fólk í þessum störfum og hefur það lagt heilsu sína í hættu og þurft að sæta ýmsum takmörkunum umfram aðra í samfélaginu vegna náinna samskipta við viðkvæma hópa í störfum sínum. Mjög mikilvægt er að fólk í þessum störfum finni fyrir hvatningu og stuðningi frá stjórnvöldum bæði í orði og borði. BSRB vill að framlínustarfsfólki verði veitt fjárhagsleg viðurkenning fyrir framlag sitt til samfélagsins í störfum sínum með sérstökum álagsgreiðslum sem ákvarðaðar verði í samráði við stéttarfélögin,“ segir í minnisblaðinu.

Skima þarf fyrir kulnun
Þar er einnig varað við langtímaafleiðingum sem framlínustarfsfólk gæti glímt við í kjölfar faraldursins. BSRB kallar eftir því að skimað verði fyrir sjúklegri þreytu og kulnun hjá þessum hópi, sem hafi í 18 mánuði borið hitann og þungann af baráttunni gegn faraldrinum í sínum störfum. Grípa verði sem fyrst inn í ef geðheilbrigði starfsfólks fari hrakandi bæði til að tryggja lífsgæði og lífskjör starfsfólksins og til að koma í veg fyrir langvarandi fjárhagslegar samfélagslegar byrðar og tap á mikilvægri sérfræðiþekkingu.

Hér má lesa minnisblað um áherslur BSRB vegna 4. bylgju COVID-19.

Til baka