Fréttir

Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar vorið 2012

9 jan. 2012

alt

Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar vorið 2012

   
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Umsækjendur skulu uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og leggja fram áætlun um vinnustaðanámið og fyrirsjáanlega framvindu þess.

  • Styrkir geta numið allt að 20 þús. kr. á viku og eru veittir til 24 vikna að hámarki. Styrkur er greiddur eftir því sem námi vindur fram.
  • Umsóknum er skilað á sérstöku eyðublaði sem er að finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis.
  • Umsókn skal fylgja yfirlit um framvindu vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar.
  • Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Kristjánsson í síma             545 9500       eða í tölvupósti á olafur.g.kristjansson@mrn.is


  • Umsóknarfrestur er til  1. febrúar 2012.

Til baka