Fréttir

Streita, seigla, samskipti og meðvirkni 

6 mar. 2023

Skráning er hafin á námskeiðið Streita, seigla, samskipti og meðvirkni sem verður haldið á Hótel Grímsborgum dagana 25.-28. apríl 2023.
Námskeiðin eru vinsæl og þetta er mikilvægt efni sem á erindi dag, í umhverfi sem tekur sífellt hraðari breytingum. Námskeiðið er í samvinnu við Sjúkraliðafélag Íslands og hægt er að sækja um styrk í starfsmenntasjóð Sjúkraliðafélagsins.

Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Kristín Sigurðardóttir

Áhersla er m.a. lögð á seiglu og streitu, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl, meðvirkni, svefn og líkamsklukkuna,. Athyglinni er beint að nýrri þekkingu, leiðum og úrræðum, áhrifum streitu og meðvirkni á líðan og heilsu og samskipti í lífi og starfi. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga, hópavinnu, hugleiðslu, djúpslökunar, hvíldar og viðveru í náttúrunni. Dagskráin hefst kl. 10.30 þriðjudaginn 25. apríl og lýkur kl. 14.00 föstudaginn 28. apríl.
Innifalið: Námskeið, matur og gisting í 3 nætur í einstaklingsherbergi, heitir pottar við hvert hús, nærandi og fallegt umhverfi. Takmarkaður fjöldi þátttakenda er á námskeiðinu sem kostar 198.000 krónur.
Nánari upplýsingar og skráning: heillheimur@heillheimur.is
Rafræn skráning hér.

Námskeiðið er í umsjón Kristínar Sigurðardóttur og Gyðu Drafnar Tryggvadóttur.

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í Læknadeild HÍ. Kristín kennir við Læknadeild HÍ, í Opna háskólanum í HR og sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Kristín er formaður Fræðslustofnunar læknafélags Íslands.

Gyða Dröfn Tryggvadóttir er lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Gyða rekur eigin meðferðarstofu, kennir í Opna háskólanum í HR, sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu og stendur einnig fyrir heilsustengdum málþingum og námskeiðum. Hún hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 23 ár.

Til baka