Fréttir

Óskað eftir endur­flutningi ráð­herra

6 nóv. 2023

Á gömlum plötum er oft bestu lögin sem verða sífellt betri við hverja hlustun. Stundum nær tónlistin til nýrra hlustenda sem sumir endurflytja og verða þá nýjir boðberar gömlu laganna. Við hjá Sjúkraliðafélaginu erum eins og gömul plata. Ítrekað flytjum við sama boðskapinn sem er að verða eins og gamall slagari, sem er; „AÐGERÐIR GEGN KYNBUNDNUM LAUNAMUN“.

Ég veit ekki hversu margar greinar og ræður ég hef flutt um þetta efni. Flutt ákall til stjórnvalda um aðgerðir. Aftur og aftur tala þessi sömu stjórnvöld um að kynbundinn launamunur og kynskiptur vinnumarkaður sé eitt brýnasta jafnréttis- og mannréttindamál okkar tíma. En svo gerist ekkert.

Með þessu aðgerðarleysi stjórnvalda er ekki einungis verið að brjóta kerfisbundið á lögbundnum réttindum kvenna, heldur er einnig verið að hafa af okkur peninga, ígildi heillar íbúðar á starfsævi sjúkraliða. Mörgum munar um minna.

Tækifærið er núna

Við sjúkraliðar höfum ekki bara kallað hátt á torgum úti og sungið gamla slagara. Við höfum einnig lagt fram tillögur um mögulegar aðgerðir. Ein þeirra er í gegnum stofnanasamninga, sem er kjörin leið til að uppræta kynbundnum launamun.

Nýverið tóku forsætisráðherra og vinnumarkaðsráðherra undir að aðgerða væri þörf við að „uppræta kynbundinn launamun“ og „endurmeta virði kvennastétta“. Gott og vel. Nú er lag frú forsætisráðherra og herra vinnumarkaðsráðherra. Hvernig ætli þið að gera þetta?

Hvernig væri að þið tækjuð upp þennan gamla slagara okkar sjúkraliða og endurflytjið boðskapinn til stjórnenda stofnana til að bæta kjör kvennastétta í gegnum áðurnefnda stofnanasamninga? Ef það strandar á fjármagni þá er fjárlagafrumvarpið enn opið. Annað eins hefur ratað í fjáraukalög af mun minna tilefni.

Það er erfitt fyrir konur og okkur sjúkraliða að bíða endalaust eftir enn einni nefndinni, á meðan þessi tiltekna og raunhæfa aðgerð stendur nú þegar til boða. Fögur orð um að uppræta þurfi kynbuninn launamun og endurmeta virði kvennastétta rata ekki í veski sjúkraliða. Aðgerðir eins og aukið fjármagn í stofnanasamninga gera það hins vegar. Sömuleiðis aðgerðir eins og „kvenna-kjarasamningar“ og launamyndunarkerfi byggðar á hugmyndafræði STARFSMATS gerir það einnig.

Þessar þrjár aðgerðir eru vel færar á þessum tímapunkti. Ráðamenn þjóðarinnar eiga ekki að geta vikið sér undan því að fylgja lögum og tryggja jöfn kjör fyrir öll kyn. Kerfisbundið misrétti á ekki að vera í boði stjórnvalda.

Grein Söndru B. Franks birtist fyrst á visir.is

Til baka