Fréttir

Orlofsuppbót verður greidd um næstu mánaðarmót

26 maí. 2020

Hinn 1. júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl næst á undan, fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliði orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Hafi viðkomandi látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða/13 vikna samfellt starf á orlofsárinu, skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum.

Orlofsuppbót starfsmanna ríkisins og Reykjavíkurborgar verður kr. 51.000,- og þann 1. maí fengu starfsmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga greiddar kr. 47.900,- .

Til baka