Fréttir

Nuddnámskeið vorönn 2012

24 jan. 2012

download
Hef verið með námskeið í klassísku vöðvanuddi og svæðanuddi síðustu átta ár
.
Hvert námskeið er 18 kennslustundir og er kennt á fjórum kvöldstundum. Einnig hef ég farið út á landsbyggðina og haldið helgarnámskeið. Næstu námskeið verða sem hér segir.

Svæðanudd
7. – 8. og 14. – 15. febrúar

Í svæðanuddi er farið inn á öll kerfi líkamans gegnum iljar, rist og ökkla. Á námskeiðinu er farið í gegnum hugmyndafræði og sögu svæðanudds og verklega kennslu. Eftir námskeiðið á fólk að geta nuddað heilnudd í svæðanuddi sjálfstætt.

Verð á námskeiðið er 26.000. Innifalið í námskeiðinu er kennslumappa og dvd diskur með svæðanuddi sem tekinn var upp á námskeiði hjá mér fólki til upprifjunnar.

Klassískt vöðvanudd
24. – 25. jan og 31. jan. – 1. feb.

21. – 22. og 28. – 29. feb.

  Í klassísku vöðvanuddi er kennt að nudda bak, háls og höfuð og andlit.
Hámarksfjöldi nemenda á hvert námskeið er takmarkaður við 6 manns til að hægt sé að leiðbeina hverjum og einum sem best. Verð á hvert námskeið er 26.000 kr. Innifalið í námskeiðinu er DVD kennslumyndband, kennslumappa og olíubrúsi með ilmolíum.

Víða taka verkalýðsfélög þátt í kostnaði við námskeiðin. Hafið samband og fáið nánari upplýsingar í síma 822 0727 eða gunnar@dao.is“ target=“_blank“>gunnar@dao.is

Til baka