Fréttir

Námskeið fyrir sjóðfélaga í lífeyrissjóði Brú um lífeyrisréttindi við starfslok

10 maí. 2017

bru mynd

Starfslokanámskeið miðvikudaginn 17. maí

Brú lífeyrissjóður heldur námskeið fyrir sjóðfélaga um lífeyrisréttindi við starfslok í húsakynnum sjóðsins, Sigtúni 42, Reykjavík miðvikudaginn 17. maí næstkomandi.

Á námskeiðinu verður farið yfir hvar helstu upplýsingar um réttindi sjóðfélaga er að finna ásamt því að svara spurningum frá sjóðfélögum um lífeyrismál. Takmarkaður fjöldi sæta eru í boði á hvert námskeið en við leitumst við að bæta við námskeiðum fari skrásetning fram úr áætluðum sætafjölda.  

Næsta námskeið verður haldið miðvikudaginn 17. maí nk. 

kl. 16.30    B deild – Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar/Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

kl. 17.30    A deild 

kl. 18.30    V deild 

Sjóðfélagar geta skráð sig á námskeiðið hér

Til baka