Launaseðillinn eftir gildistöku betri vinnutíma í vaktavinnu
31 maí. 2021
Þann 1. júní verður í fyrsta sinn greitt samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinnu.
Margir spyrja sig án efa eftirfarandi spurninga:
- Hvaða breytingar verða á launaseðlinum mínum vegna gildistöku betri vinnutíma í vaktavinnu?
- Hvernig mun launaseðillinn minn líta út og hverju þarf að fylgjast með?
Til þess að svara þessum spurningum hefur verið gefið út fræðsluefni:
Myndband sem lýsir helstu breytingum sem verða á launaseðli vaktavinnufólks vegna gildistöku betri vinnutíma í vaktavinnu 1. maí 2021:
- Myndband í formi glærukynningar (myndband)
- Glærur þar sem farið er skref fyrir skref í helstu atriði (PDF)
- Spurningar og svör í spurt og svarað (linkur)
- Leiðbeiningar um yfirferð á launaseðli (PDF)
Helstu breytur sem fylgjast þarf með eru:
- Starfshlutfall, ef starfsmaður í hlutastarfi hefur hækkað starfshlutfall sitt
- Yfirvinna
- Vaktaálag
- Bakvaktaálag
- Breytingargjald