Fréttir

Göngu- og skemmtiferð til Cádiz, Sevilla og Conil

17 apr. 2024

Göngu- og skemmtiferð til Cádiz, Sevilla og Conil dagana 15.- 22. september 2024 á vegum SLFÍ.
Verð til sjóðfélaga 240.000 kr. (fullt verð: 291.000 kr.) Punktafrádráttur: 10 punktar.
Opnað verður fyrir sölu í ferðina þann 23. apríl klukkan 13:00.

Að þessu sinni er ferðinni heitið til Cádiz, Sevilla og Conil. Catiz er ein elsta borg Spánar, stendur við Atlantshafið. Sevilla er stærsta borg Andalúsíu. Conil er strandbær í Cádiz.

• Flogið er með Play á vegum Heimsferða til Malaga
• Hámarksfjöldi í ferðina er 19 manns
• Ferðin er skipulögð af Úlfheiði Ingvarsdóttur, sjúkraliða og leiðsögumanni í samvinnu við ferðaskrifstofuna Salamöndru.

  • Flug með Play á vegum Heimsferða
  • Akstur til og frá flugvelli
  • Kvöldverður á fyrsta degi
  • Hótel, gist á þriggja stjörnu hótelum, 3 nætur í Cátiz og 4 í strandbænum Conil
  • Morgunverður alla dagana
  • Þrír göngudagar með nesti og enskumælandi leiðsögumönnum
  • Dagsferð til Sevilla, sigling á ánni Guadalquivir
  • Fjórir þriggja rétta hádegisverðir
  • Fararstjórn undirritaðrar

1. 50.000 kr (óendurkræft) staðfestingargjald er greitt í gegnum orlofsvef SLFÍ
2. 75.000 kr fyrir flug greiðir sjóðfélagi hjá Heimsferðum í síðasta lagi 20. maí (hefur beint samband við þá)
3. Eftirstöðvar 115.000 kr greiddar hjá SLFÍ síðasta lagi 3. júní
Heildarkostnaður fyrir sjóðfélaga: 240.000 kr.

Upplýsingar um ferðatilhögun má finna með því að smella á þennan link.

Til baka