Fréttir

Formannskjör 2024

23 jan. 2024

Kjörnefnd Sjúkraliðafélags Íslands auglýsir eftir framboðum til formanns félagsins. Frambjóðendur þurfa að skila skriflegu framboði til kjörnefndar á netfangið: huldabirnafrimannsd@gmail.com

Í tilkynningu um framboð skal tiltaka nafn, kennitölu og vinnustað, ásamt mynd af frambjóðanda. Frambjóðendum er bent á að kynna sér lög félagsins, og þá sérstaklega þær greinar sem varða stjórn, ábyrgð formanns og formannskjör. Einungis félagsmenn með fulla félagsaðild, sem ekki hafa gerst brotlegir við siðareglur félagsins, eru kjörgengir í embætti formanns. Sandra B. Franks hefur ákveðið að bjóða sig fram til endurkjörs. Framboðsfrestur er til 1. mars 2024. Ef fleiri en einn eru í kjöri verður efnt til allsherjaratkvæðagreiðslu.

Fyrir hönd kjörnefndar Sjúkraliðafélags Íslands,
Hulda Birna Frímannsdóttir, formaður nefndarinnar

Til baka