Fréttir

Fæst sveitarfélög tryggja leikskólapláss fyrir 12 mánaða börn

5 maí. 2022

Fæst sveitarfélög tryggja börnum leikskólapláss eftir að hefðbundnu fæðingarorlofi lýkur. Þetta kemur fram í skýrslu BSRB um umönnunarbilið, sem ætlað er að varpa ljósi á stöðu leikskólavistunar ungra barna á Íslandi og atvinnuþátttöku foreldra.

Þrátt fyrir að mikill sigur hafi unnist þegar fæðingarorlof var lengt í 12 mánuði árið 2021 er staðan sú að umönnunarbilið svokallaða, þ.e. bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, er enn of langt í flestum tilfellum. Núverandi skipan leikskólamála takmarkar möguleika foreldra til þátttöku á vinnumarkaði að loknu fæðingarorlofi. Ekki hefur verið gripið til neinna aðgerða af hálfu ríkisvaldsins til þess að tryggja 12 mánaða gömlum börnum stuðning við umönnun og menntun ungra barna sinna á borð við leikskóla og er því staða barna og foreldra afar misjöfn eftir búsetu. Mörg sveitarfélög hafa þó sett sér skýr markmið, gripið til aðgerða og minnkað umönnunarbilið umtalsvert frá árinu 2017.

Umönnunarbilið hefur neikvæð áhrif á jafnrétti kynjanna þar sem konur eru líklegri til að minnka við sig vinnu en karlar eða lengja fæðingarorlof, með tilheyrandi tekjumissi. Það er því mikilvægt jafnréttismál að að ríki og sveitarfélög grípi til aðgerða til að öllum börnum verði tryggð leikskólapláss að loknu fæðingarorlofi foreldra sama hvar á landinu þau búa.

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hvetur BSRB öll framboð til að brúa bilið með því að setja í forgang rétt barna til leikskólapláss strax að loknu fæðingarorlofi foreldra. Auk þess kallar bandalagið eftir því að sá réttur verði lögfestur á Alþingi hið fyrsta með tilheyrandi fjármögnun. Og þannig veita barnafjölskyldum hér á landi sambærilegan stuðning og á hinum Norðurlöndunum.

Skýrsluna má lesa hér.

Til baka