Fréttir

Opnað fyrir sölu í gönguferð í Kerlingarfjöllum

11 mar. 2024

Gönguferð innanlands SLFÍ í Kerlingarfjöllum dagana 11.-15. júlí 2024.

Ferðin kostar 70.000 kr. á mann (fullt verð 100.000 kr).
Opnað verður fyrir sölu á orlofsvef SLFÍ 17. apríl kl:13:00

Kerlingarfjöll á Kili eru á miðju hálendi  Íslands. Í Kerlingarfjöllum er fjölbreytt landslag á litlu svæði, tignarleg fjöll, jöklar, hverasvæði, gljúfur og dalverpi.

Hin árlega innanlandsferð Sjúkraliðafélags Íslands verður að þessu sinni í Kerlingarfjöllum. Hámarksfjöldi í ferðina eru 19 einstaklingar. Gist verður í svefnpokagistingu í fjórar nætur (gist í skálum fyrir 15 manns og 6 manns). Gengið verður í þrjá daga um þetta magnaða svæði. Skipt verður í matarhópa sem eldar sameiginlegar máltíðir.

 

 

Dagskrá ferðar: 

  • Dagur 1: Lagt af stað frá skrifstofu SLFÍ að Grensásvegi með rútu kl: 9:00. Ekið í Kerlingarfjöll með viðkomu á Gullfossi.
  • Dagur 2: Hringur í Neðri Hveradölum, gengið 12-14 km og 500 m hækkun.
  • Dagur 3: Ásgarðsfjall, Keis og Ásgarðsgljúfur, gengið 10-12 km og 300 m hækkun.
  • Dagur 4: Kerlingin klukkuð gengið 14 -16 km og 400 m hækkun.
  • Dagur 5: Heimferð kl: 11:00.

Innifalið í ferðinni:

  • Akstur fram og til baka í Kerlingarfjöll
  • Svefnpokagisting
  • Fararstjórn og gönguleiðsögn

Það sem þarf að hafa meðferðis:

  • Bakpoka
  • Regngalli
  • Legghlífar
  • Auka peysa
  • Húfa
  • Sólgleraugu
  • Vatnsflaska, hitabrúsi, bolli
  • Nesti fyrir tvö nestisstopp
  • Smávegis nasl (orkugefandi)
  • Göngustafi
  • Flugnanet
  • Sundfatnað
  • Vaðskór
  • Sólarvörn

Til baka