Fréttir

Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu

16 nóv. 2023

Vinnueftirlitið boðar aðgerðavakningu undir yfirskriftinni #Tökum höndum saman: Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu. Markmiðið er að vekja athygli á því að heilbrigð vinnustaðamenning stuðlar að öryggi og vellíðan starfsfólks og er ein áhrifaríkasta forvörnin gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. Hún hefur auk þess jákvæð áhrif á árangur og orðspor vinnustaða.

Stofnunin hefur unnið nýtt fræðslu- og stoðefni um vinnustaðamenningu sem ætlað er að vekja athygli á efninu og vinnustaðamenningu almennt. Upplýsingar má nálgast á heimasíðu Vinnueftirlitsins, hér.

Til baka