Desemberuppbót 2023

Greiðsla desemberuppbótar verður með sama sniði og verið hefur.
Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október.

  • Ríkið 103.000 kr.
  • Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu 103.000 kr.
  • Reykjavíkurborg 115.000 kr.
  • Samband íslenskra sveitarfélaga 144.556 kr.

Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember 2023.

Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall.

Tímavinnufólk þarf að hafa skilað 1504 dagvinnustundum á tímabilinu 1. janúar til 31. október til að fá 100% desemberuppbót. Tímavinnustarfsmaður sem vinnur færri klukkustundir á tímabilinu fær greitt hlutfallslega samkvæmt því.

Til baka