Fréttir

Desemberuppbót 2022

7 nóv. 2022

Greiðsla desemberuppbótar verður með sama sniði og verið hefur, og verður eftirfarandi miðað við fullt starf:
Ríkið greiðir 98.000 kr.
Reykjavíkurborg greiðir 109.100 kr.
Samband íslenskra sveitarfélaga 132.659 kr.
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu 98.000 kr.
Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október.

Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt
öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember 2022.

Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall.

Tímavinnufólk þarf að hafa skilað 1504 dagvinnustundum á tímabilinu 1. janúar til 31. október til að fá 100% desemberuppbót. Tímavinnustarfsmaður sem vinnur færri klukkustundir á tímabilinu fær greitt hlutfallslega samkvæmt því.

Til baka