BSRB, BHM og KÍ ganga saman til kjaraviðræðna
8 feb. 2023
Formenn heildarsamtakanna þriggja hafa undanfarnar vikur fundað óformlega með fulltrúum opinberra launagreiðenda. Formlegar viðræður eru nú hafnar, en bandalögin þrjú hafa ákveðið að ganga saman til kjaraviðræðna við viðsemjendur sína um ákveðna meginþætti kjarasamninga en aðildarfélögin munu síðan semja sérstaklega um sín sérmál.
Stíf fundarlota er fram undan og áhersla á að skila kjarabótum til alls félagsfólks. Sérstök áhersla er lögð á að leysa úr jöfnun launa milli markaða, sem er óuppgert frá 2016 þegar samkomulag var gert um breytingu á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna.

Fulltrúar heildarsamtakanna hafa einnig haldið sameiginlegan fund til að stilla saman strengi og veita formönnum þeirra gott veganesti í þær viðræður sem þau leiða fyrir hönd heildarsamtakanna.