Ársskýrsla Vestfjarðardeildar 2023
Kæru Sjúkraliðar
Þessi skýrsla er nokkuð stutt enda þessi stjórn búin að starfa stutt.
Í stjórn sitja 2022 til 2023
Linda Björk Óskarsdóttir, formaður
Sólveig Sigríður Guðnadóttir, varaformaður
Marý Karlsdóttir
Þórdís Guðbjörg Guðmundsdóttir
Ingibjörg Heba Halldórsdóttir
Stjórn þessi tók við á aðalfundi þann 16. september 2022. Þar var ágætis mæting. Þakkar stjórnin þeim Jóhönnu, fráfarandi formanni, Helgu Rebekku, gjaldkera og Ólafíu, ritara fyrir þeirra störf í þágu félagsins.
Formaður félagsins gerði tvær tilraunir með að komast vestur og gekk það 21. nóvember 2022 og í för með henni var Gunnar Örn og Ágúst Ólafur. Haldinn var smá fundur í salnum á Hjúkrunarheimilinu Eyri þar sem sjúkraliðar gátu komið, hitt á þau og tekið spjallið.
Haldin var jólafundur 25. nóvember 2022. Mættar voru tíu konur sem snæddu dýrindis fingramat, spiluðu bingó og skiptast á pökkum. Falleg stund með furðulegri jólasögu.
Haldnir voru tveir nefndarfundir hjá stjórninni, sá fyrri í október 2022 og var það fyrsti fundur þessarar stjórnar. Síðan komum við saman í janúar 2023 til að taka stöðuna á málum sem komið höfðu á borð stjórnarinnar.
Um jólin útskrifuðustfjórir sjúkraliðar frá Menntaskólanum á Ísafirði og fengu útskriftarefnin varning frá sjúkraliðafélaginu og rós að gjöf. Óskum við þeim velfarnaðar í starfi.
Sjúkraliðar fóru og aðstoðuðu við blóðsykurmælingar í bænum með Lions á Ísafirði og hjúkrunarfræðingum á svæðinu.
Formaður og varaformaður sóttu sína fundi fyrir hönd deildarinnar.
Fleira var það ekki að sinni. Hlökkum til að takast á við komandi ár.
Með kærri kveðju, stjórnin.