Áhugaverð námskeið framundan hjá Framvegis
24 ágú. 2018
Fjölbreytt námskeið verða boði hjá Framvegis, miðstöð símenntunar nú í haust. Sjúkraliðanámskeiðin eru öll starfstengd og metin til launa fyrir stéttina. Framvegis nýtur liðsinnis fagráðs með uppbyggingu nýrra námskeiða og á í góðu samstarfi við aðrar símenntunarmiðstöðvar um námskeiðin. Öll sjúkraliðanámskeiðin eru kennd í staðnámi en mörg þeirra eru einnig fjarkennd sem auðveldar sjúkraliðum á landsbyggðinni að sækja símenntun.
Námskeið sem verða í boði haustið 2018:
Nýtt: ÁHRIF VAKTAVINNU Á ANDLEGA OG LÍKAMLEGA LÍÐAN SJÚKRALIÐA
Nýtt: LÍF MEÐ TAUGASJÚKDÓM: ALGENG EINKENNI, LÍFSGÆÐI OG ÚRRÆÐI TIL ORKUSPARNAÐAR
Nýtt: SÉRSTAKAR ÞARFIR ALDRAÐRA OG AÐSTANDENDA ÞEIRRA
Nýtt: GÓÐ NÆRING – BÆTT LÍFSGÆÐI
KVÍÐI OG KVÍÐAMEÐFERÐIR
PARKINSONS SJÚKDÓMURINN
ÁLAG Í SAMSKIPTUM Í HEILBRIGÐISGEIRANUM
ENGIN HEILSA ER ÁN GEÐHEILSU – MAT Á ÞUNGLYNDI OG SJÁLFSVÍGSHÆTTU
Nýtt: JAFNVÆGI Í DAGLEGU LÍFI HEILBRIGÐISSTARFSMANNA
Nýtt: TVÍGREINDUR VANDI / SKAÐAMINNKUN
Auk þess verður boðið upp á:
Leiðbeinendanámskeið, námskeið fyrir leiðbeinendur sjúkraliðanema verður haldið í nóvember hjá Framvegis.
Náms- og starfsráðgjöf; náms- og starfsráðgjafar hjá Framvegis eru til staðar fyrir þig ef þú ert eldri en 20 ára og hefur ekki útskrifast úr framhaldsskóla.
Raunfærnismat; raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast í starfi og frítíma.
Framvegis – miðstöð símenntunar býður fyrirtækjum og stofnunum þjónustu við að greina þarfir fyrir fræðslu, þjálfun og annað sem tengist uppbyggingu starfsmanna og notar til þess faglega greiningaraðferð sem ber heitið Markviss.
Skráning fer fram á vefsíðu Framvegis www.framvegis.is en einnig er hægt að hringja í síma 581 1900