Lífeyrismál við starfslok – Brú lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar
17 jan. 2020
Námskeið um lífeyrismál við starfslok.
Boðið verður upp á námskeið um lífeyrismál við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar miðvikudaginn 29. janúar næst komandi.
Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42.
Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu réttindi sjóðfélaga, sýnt hvar upplýsingar um lífeyrisréttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.
Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðið því skipt upp eftir því. Takmarkaður fjöldi sæta eru í boði á hvert námskeið en leitast er við að bæta við námskeiðum fari skrásetning fram úr áætluðum sætafjölda.
B deild – LsRb kl. 16.30
A deild kl. 17.30
V deild kl. 18.30