Beint í efni

Mál sem þurfa að skila sér í verki

Þessa vikuna höfum við fundað títt, farið yfir mál sem snúa að innra starfi félagsins og tekið þátt í umræðu um réttindi, starfsaðstæður og framtíð opinberrar þjónustu. Fundirnir hjálpa okkur að samræma áherslur um hvernig best er að fylgja málum eftir.

6. nóvember 2026

Við höfum líka fengið nýjan starfskraft á skrifstofuna. Kristín Þóra Harðardóttir, lögfræðingur, hefur tekið til starfa sem verkefnastjóri kjara- og réttindamála. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna og hlökkum til samstarfsins.

Á fundi framkvæmdastjórnarinnar ræddum við meðal annars árshlutauppgjör, virðismat starfa og umsögn vegna frumvarps um viðbrögð við lyfjaskorti. Félagsstjórnin fór yfir niðurstöður hópastarfs trúnaðarmannaráðsins, stöðu starfshóps um mönnun, menntun og starfssvið sjúkraliða og undirbúning 60 ára afmælis félagsins. Á stjórnarfundi BSRB voru fyrirhugaðar breytingar á starfsmannalögum um áminningarskyldu til umræðu. Einnig var fjallað um lífeyrismál og heimasíðu bandalagsins, auk annarra mikilvægra mála þess.

Við áttum einnig samráð við Landspítala og fjármála- og efnahagsráðuneytið um listann yfir störf sem óskað er eftir að verði undanþegin verkfallsheimild. Þetta er lögbundið samráðsferli sem þarf að sinna þar sem farið er yfir þá mönnun sem þarf að tryggja ef og þegar til verkfalla kemur. Markmiðið er að tryggja nauðsynlega þjónustu og öryggi sjúklinga og að undanþágur byggist á skýrum forsendum.

Rýni á starfasniði sjúkraliða vegna virðismats starfa hjá ríkinu heldur áfram. Við leggjum áherslu á að ábyrgð, frumkvæði og faglegt mat sjúkraliða komi skýrt fram. Í umsögn okkar um frumvarp vegna viðbragða við lyfjaskorti leggjum við jafnframt áherslu á að reglur um lyfjameðferð taki mið af menntun, hæfni og ábyrgð sjúkraliða og að starfsfólk hafi nauðsynlegar upplýsingar til að sinna meðferðinni.

Starfshópur heilbrigðisráðherra um mönnun, menntun og starfssvið sjúkraliða hefur nú hafið störf. Á fundi hópsins var farið yfir sögu og uppbyggingu sjúkraliðanámsins. Sigurlaug Björk J. Fjeldsted, kennari við sjúkraliðabraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, kynnti námið. Hafdís Skúladóttir, dósent og deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri, og Jette Jörgensen Mebrouk, lektor við deildina, kynntu fagnám fyrir starfandi sjúkraliða við HA. Þær svöruðu jafnframt fyrirspurnum fulltrúa starfshópsins. 

Við höfum líka lagt áherslu á að miðla upplýsingum um símenntun. Í vikunni birtum við grein Láru Maríu Valgerðardóttur, verkefnastjóra fræðslumála, um hvernig símenntun eflir faglega hæfni, styrkir öryggi í starfi og getur skilað sér í betri kjörum. Til þess þarf jafnframt að skapa starfsfólki svigrúm til að læra og þróast. Í vikunni lauk einnig lokayfirferð á nýju tölublaði Sjúkraliðans áður en það fór í prentun. Undirbúningur Sjúkraliðadagsins og 60 ára afmælishátíðar félagsins heldur jafnframt áfram. Hátíðin verður haldin 19. nóvember og þar gefst okkur færi á að fagna árangri sjúkraliða og horfa til verkefnanna fram undan.

Í öllum þessum verkefnum liggur sama áherslan, um að sjúkraliðar fái að nýta þekkingu sína, beri ábyrgð í skýrum farvegi og fái störf sín metin að verðleikum. Við á skrifstofunni höldum áfram að fylgja málunum eftir í samtali við félagsfólk, stjórnvöld og vinnuveitendur.

Góða helgi!