Símenntun sjúkraliða – meiri þekking, aukið öryggi og betri kjör
Hvenær fórstu síðast á námskeið sem gaf þér nýja sýn á starfið? Kannski lærðir þú nýja aðferð, fékkst staðfestingu á því sem þú gerir vel eða áttir samtal við samstarfsfélaga sem sat eftir. Símenntun snýst ekki aðeins um að bæta stundum á námsmatsblað. Hún er leið til að efla faglega hæfni, styrkja sig í starfi og bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hún getur líka skilað sér í hærri launum.

Fagmennska þarf stöðuga næringu
Sjúkraliðanámið leggur grunn að mikilvægum störfum, en faglegri þróun lýkur ekki við útskrift. Samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 ber sjúkraliðum að viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar sem varða starfið. Símenntun er því mikilvægur þáttur í faglegri ábyrgð sjúkraliða. Með reglulegri fræðslu fá sjúkraliðar tækifæri til að rifja upp þekkingu, tileinka sér nýjungar og þróa vinnubrögð sín. Þannig getur símenntun styrkt faglegt öryggi og stuðlað að betri gæðum þjónustunnar. Hún er mikilvæg bæði fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í starfi og þá sem hafa langa reynslu að baki. Reynslan og ný þekking eiga ekki að keppa hvort við annað, heldur vinna saman.
Aukin þekking getur skilað sér í hærri launum
Símenntun hefur ekki aðeins faglegt gildi heldur getur hún einnig bætt kjör sjúkraliða. Í kjara- og stofnanasamningum eru ákvæði um að viðbótarþekking og starfstengt nám geti verið metin til launaþrepa eða persónuálags. Sjúkraliðar geta því safnað metnum símenntunarstundum og öðlast þannig rétt til hækkunar samkvæmt þeim samningi sem gildir um störf þeirra. Viðmiðin eru þó ekki alls staðar þau sömu. Hversu margar stundir þarf til hækkunar fer eftir viðeigandi kjara eða stofnanasamningi. Þess vegna er mikilvægt að kynna sér eigin stöðu og þau viðmið sem gilda á eigin vinnustað. Á vef Sjúkraliðafélags Íslands er að finna yfirlit yfir símenntunarþrep hjá mismunandi launagreiðendum, Námsmat - Sjúkraliðafélag Íslands.
Hvernig virkar námsmatskerfi Sjúkraliðafélags Íslands?
Sjúkraliðafélag Íslands metur nám og námskeið til símenntunarstunda samkvæmt matsreglum félagsins. Metnar stundir geta síðan skilað sér í launahækkunum samkvæmt viðeigandi kjara- og stofnanasamningum. Námskeið þurfa meðal annars að tengjast starfi eða viðfangsefnum sjúkraliða og vera að lágmarki þrjár kennslustundir til að koma til mats. Ekki eru því öll námskeið sjálfkrafa metin, jafnvel þótt þau geti verið áhugaverð og gagnleg. Kerfið er því hvati til að viðhalda þekkingu, efla færni og sækja sér aukna sérhæfingu í starfi. Sótt er um námsmat í gegnum Mínar síður á heimasíðu Sjúkraliðafélag Íslands, Ábyrgð, alúð, umhyggja - með rafrænum skilríkjum. Með umsókninni þurfa að fylgja viðeigandi gögn sem staðfesta að námi eða námskeiði hafi verið lokið. Mikilvægt er að upplýsingar um stundafjölda komi fram. Á Mínum síðum má einnig nálgast námsmatið og sjá hversu margar símenntunarstundir hafa verið metnar. Góð venja er að halda viðurkenningarskjölum, prófskírteinum og öðrum staðfestingum á námi til haga og senda þau reglulega til mats. Félagið sendir námsmat til viðeigandi launadeildar þegar næsta launaþrepi er náð. Sjúkraliðinn þarf jafnframt að koma námsmatinu áfram til yfirmanns og fylgja því eftir við launadeild. Vinnuveitandinn ber ábyrgð á launasetningunni og gott er að fylgjast með því að samþykkt námsmat skili sér í réttri launaröðun.
Sköpum svigrúm til símenntunar
Hvers vegna ekki að gera símenntun að sameiginlegu verkefni á vinnustaðnum? Veljum námskeið með samstarfsfélaga, hvetjum hvert annað til þátttöku og gefum okkur síðan tækifæri til að ræða það sem við lærðum. Hvað getum við nýtt strax? Hvað væri áhugavert að skoða betur? Hvernig getum við miðlað þekkingunni til annarra á deildinni eða vinnustaðnum? Símenntunarstöðvar eru mikilvægur vettvangur fyrir slíka fræðslu. Framvegis hefur um árabil unnið með Sjúkraliðafélagi Íslands að símenntun sjúkraliða og býður upp á starfstengd námskeið sem eru sérstaklega ætluð stéttinni. Boðið er upp á bæði staðnám og fjarnám sem auðveldar sjúkraliðum á landsbyggðinni að taka þátt. Símenntunarstöðvar á landsbyggðinni bjóða líka upp á fjölbreytt námskeið sem geta gagnast sjúkraliðum. Þegar óvissa er um hvort námskeið uppfylli skilyrði námsmats er skynsamlegt að leita upplýsinga hjá félaginu áður en námskeiðið hefst.
Fræðsla og símenntun eykur fagmennsku
Til að símenntun verði reglulegur hluti starfsins þurfa sjúkraliðar að hafa tíma og svigrúm til þátttöku á vinnutíma. Vinnustaðir ættu að styðja við símenntun með góðu skipulagi, samtali um fræðsluþarfir og skýrum fræðsluáætlunum. Sjúkraliðar ættu að fá tækifæri til að taka þátt í mótun þessara áætlana og koma á framfæri hugmyndum sínum og óskum. Þannig verður símenntun sameiginlegt verkefni starfsfólks og stjórnenda. Það ætti ekki eingöngu að vera verkefni hvers og eins að finna tíma og leiðir til að viðhalda þeirri þekkingu sem nýtist vinnustaðnum öllum. Jafnframt er mikilvægt að kanna möguleika á námsstyrkjum. Félagsmenn geta, að uppfylltum skilyrðum viðkomandi sjóða, sótt um stuðning til náms og starfsþróunar hjá Sjúkraliðafélagi Íslands. Gerum símenntun að reglulegum hluta starfsþróunar. Skoðum fræðsluframboðið, tökum samstarfsfélaga með og munum að láta meta það nám sem við ljúkum. Markmiðið er ekki aðeins að ná næsta launaþrepi heldur að halda áfram að vaxa í starfi.
Veljum að læra saman – fyrir okkur sjálf, fagið okkar og fólkið sem treystir á okkur.
Höfundur er Lára María Valgerðardóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Sjúkraliðafélagi Íslands, varaformaður Sjúkraliðafélagsins og stjórnarformaður Framvegis símenntunarstöðvar