Fræðslusjóður
Fræðslusjóður styður stofnanir og verkefni til framþróunar sem stuðla að markvissri símenntun sjúkraliða. Markmið sjóðsins er einnig að auka möguleika stofnana til að þróa starfsemi sína í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til starfseminnar. Samstarf við önnur stéttarfélög opinberra starfsmanna eða fræðslusetur er eitt af markmiðum sjóðsins.

Umsókn um styrk úr Fræðslusjóði
Sækja umHvernig er sótt um?
Hægt er að senda inn umsókn ásamt fylgigögnum rafrænt með því að smella á hlekkinn hér að ofan. Með umsókn þarf að fylgja ítarleg greinargerð þar sem fram kemur lýsing á verkefninu, kostnaðargreining ásamt nöfnum og kennitölum þáttakenda eftir því sem við á.
-2000x1333.jpg&w=3840&q=75)
Stjórn Fræðslusjóðs
Stjórn Starfsþróunarsjóðs og Fræðslusjóðs er skipuð sex fulltrúum, þremur frá Sjúkraliðafélagi Íslands, tveimur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og einum frá Reykjavíkurborg, þau eru:
- Sandra B. Franks, formaður
- Kristín Ólafsdóttir
- Lára María Valgerðardóttir
- Einar Mar Þórðarson
- Ásta Einarsdóttir
- Íris Jóhannsdóttir
Varamenn
- Birna Ólafsdóttir
- Hulda Birna Frímannsdóttir
- Halldóra Friðjónsdóttir
- Guðný Norðdalh Einarsdóttir