Beint í efni

Starfsmenntasjóður

Markmið sjóðsins er að bæta möguleika félagsmanna til að auka menntun sína og tileinka sér framfarir og tæknibreytingar á sínu sérsviði. Styrkhæf verkefni þarf að varða starfið, fagsvið eða starfsþróun umsækjanda. Félagsmaður getur að hámarki fengið 200.000 kr. samtals í styrk á 24 mánaða tímabili. Sótt er um á Mínum síðum.

Einstaklingsstyrkir

Styrkir úr Starfsmenntasjóði

Rétt í sjóðinn öðlast félagsmaður þegar greiðslur félagsgjalda hafa staðið yfir í sex mánuði samfellt. Félagsmaður þarf að vera í starfi þegar hann sækir um styrk og þegar nám/námskeið var greitt. Aðild má ekki rofna lengur en sex mánuði.  

Nánar
Algengar spurningar
  • Sækja þarf um styrk í gegnum Mínar síður með rafrænum skilríkjum.

  • Þegar umsókn hefur borist, þá birtist staðfestingartexti og umsóknin kemur fram á yfirliti umsókna á Mínum síðum. Hafi ekkert af þessu gerst, hefur umsókn ekki verið móttekin.

  • Hægt er að sækja um styrk allt að 12 mánuði aftur í tímann að því gefnu að reikningurinn sé ekki eldri en 12 mánuðir.

  • Já, það má.

    Dæmi:

    Ef sótt er um styrk fyrir ráðstefnuferð erlendis og ráðstefnugjald og flug eru greidd fyrirfram, en gisting ekki fyrr en komið er á hótelið, þá má senda fyrstu umsókn fyrir ráðstefnugjaldinu og flugkostnaðinum. Þegar gisting hefur verið greidd er hægt að senda inn aðra umsókn fyrir þann kostnað. Í seinni umsókninni nægir að taka fram að hún sé framhald af þeirri fyrri.

  • Ef sótt er um styrk vegna kostnaðar sem annar en umsækjandi sjálfur greiddi þarf að fylgja reikningur sem stílaður er á greiðanda. Auk þess þarf að fylgja með millifærslukvittun umsækjanda, fyrir hans hluta, til þess aðila sem greiddi heildarkostnað.

    Slíkt tilhögun getur til dæmis átt við í ferðum erlendis, þar sem tveir deila herbergi. Það er hægt að sækja um styrk vegna eigin hlutar í þeim kostnaði að því gefnu að reikningar og millifærslukvittanir liggi fyrir.

  • Að jafnaði er greitt út einu sinni í viku.

  • Þegar styrkur hefur verið greiddur er send greiðslutilkynning í tölvupósti.

  • Félagsmaður sem fer í fæðingarorlof og velur að greiða félagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum viðheldur áunnum réttindum í sjóðnum yfir það tímabil sem greiðslur berast.

  • Félagsmaður viðheldur áunnum réttindum í sjóðnum á meðan greiddir eru sjúkradagpeningar frá Styrktarsjóðnum Klett. Umsækjandi sem hefur fullnýtt rétt sinn til sjúkradagpeninga nýtur áfram réttinda í sjóðnum í allt að eitt ár, stofni hann ekki til réttinda annarsstaðar. Með umsókn þarf að senda inn staðfestingu á að viðkomandi sé í veikindaleyfi, t.d. afrit af launaseðli og/eða afrit af greiddum sjúkradagpeningum.

  • Félagsmaður í launalausu leyfi á rétt á styrk samkvæmt reglum sjóðanna að öðrum skilyrðum uppfylltum. Með umsókn þarf að skila inn staðfestingu frá vinnuveitanda þess efnis að viðkomandi sé í launalausu leyfi.

  • Félagsmaður  sem fær greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun heldur réttindum í allt að 12 mánuði. Með umsókn þarf að senda staðfestingu um að viðkomandi sé að fá endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun.

  • Aðild að fræðslusjóðunum fellur niður að sex mánuðum liðnum frá því síðast var greitt félagsgjald.

Stjórn

Stjórn Starfsmenntasjóðs

Starfsmenntasjóðurinn er fjármagnaður með framlagi launagreiðanda í samræmi við ákvæði kjarasamninga. Stjórn sjóðsins er skipuð framkvæmdastjórn ásamt starfsmanni skrifstofu sem fer með fræðslumál félagsins, þau eru: 

  • Sandra B. Franks, formaður
  • Lára María Valgerðardóttir
  • Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir 
  • Magnús E. Smith
  • Bjarney K. Haraldsdóttir