Ársskýrsla Svæðisdeildar Norðurlands eystra 2026
Starfsár deildarinnar hófst á haustgleði þann 15. október þar sem farið var í heimsókn á slökkvistöðina og fengin fræðsla um þeirra störf og búnað. Eftir það var haldið út að borða og svo í pílu þar sem allir skemmtu sér vel.

Þann 12. nóvember var aðalfundur deildarinnar haldinn á Strikinu og var vel sóttur. Þar fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf ásamt því að við fengum fræðslu um skaðaminnkandi verkefnið Frú Ragnheiðar, sem er á vegum Rauða krossins. Komið var að formannskjöri á aðalfundinum og gaf Kristín Helga kost á sér áfram sem formann deildarinnar. Hún fékk engin mótframboð og var því sjálfkjörin.
Harpa Hlín og Júlía Mist ákváðu að gefa ekki kost á sér áfram í stjórn og þökkum við þeim fyrir þeirra störf í gegnum árin. Í stað þeirra gáfu Guðrún Margrét Sigurðardóttir og Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir kost á sér án mótframboða og voru þær boðnar velkomnar í stjórn.
Stjórn deildarinnar skiptist því svo:
- Kristín Helga Stefánsdóttir, formaður
- Erla Birgisdóttir, varaformaður
- Alexía María Gestsdóttir, ritari
- Sonja Isabel Ruiz Martinez, meðstjórnandi
- Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir, meðstjórnandi
- Guðrún Margrét Sigurðardóttir, meðstjórnandi
Haldinn var einn stjórnarfundur á starfsárinu þar sem starfsárið var að mestu ákveðið og lögð upp drög að skipulagi þess. Einnig vorum við í netsamskiptum yfir árið.

Ábúðarfullir sjúkraliðar í kransagerð 
Kransarnir tilbúnir fyrir jólin
Í nóvember var boðið upp á tvö kransagerðarnámskeið í tilefni Evrópudags sjúkraliða og var mjög góð aðsókn á þau og allir ánægðir sem komu og tóku þátt í þeim.

Í mars bauð deildin upp á förðunarnámskeið þar sem Margrét Bergmann kom og sýndi okkur grundvallaratriðin að góðri förðun, það var sæmileg mæting og mjög skemmtilegt og fróðlegt kvöld.
Í maí var svo haldið af stað í vorferð til Húsavíkur þar sem Norðurlandsdeild vestri hitti okkur á Fosshótel Húsavík. Þar borðuðum við saman og fengum fræðslu frá Ásgeiri Böðvarssyni, meltingarfærasérfræðing. Eftir það var haldið í Sjóböðin þar sem var frekar kalt og hvasst,en það var þó gaman í góðum félagsskap.

Sjúkraliðar Svæðisdeilda Norðurlands eystra og vestra fóru í sameiginlega vorferð í maí
Í janúar 2026 voru meðlimir deildarinnar 232 en árið þar áður voru þeir 224 þannig þeim fjölgaði á milli ára sem er ánægjulegt að sjá. Það hefur lengi verið hefð fyrir því að færa nýútskrifuðum sjúkraliðum rós og plagg frá Sjúkraliðafélaginu við útskrift. Frá Verkmenntaskólanum á Akureyri útskrifuðust þrír sjúkraliðar í desember og sex í maí. Framhaldsskólinn á Húsavík útskrifaði svo í fyrsta skipti átta sjúkraliða sem höfðu lokið sjúkraliðabrúarnámi frá þeim í maí. Það er aldrei of oft sagt að sjúkraliðastéttin er að eldast og skortur á sjúkraliðum er orðinn staðreynd í heilbrigðiskerfinu. Þessi þróun kallar á markvissar aðgerðir til að fjölga sjúkraliðum, efla nýliðun og skapa starfsaðstæður sem stuðla að því að sjúkraliðar vilji starfa áfram í faginu. Það er nefnilega ekki bara hagsmunamál okkar sjúkraliða að standa vörð um sjúkraliðastéttina heldur er það samfélagslegt verkefni sem snertir alla þjóðina.
Stjórn þakkar góðar stundir á árinu,
Kristín Helga Stefánsdóttir, formaður Svæðisdeildar Norðurlands eystri

