Beint í efni

Vorskýrsla kjaratölfræðinefndar 2026

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar var kynnt á fundi í morgun, 30. júní. Í skýrslunni er fjallað um þróun efnahags- og vinnumarkaðsmála, launa og kjarasamninga. Nýtt í skýrslunni er tölfræði um launabreytingar eftir launastigi, mörkuðum og heildarsamtökum launafólks.

30. júní 2026

Yfirstandandi kjarasamningslota hófst í mars 2024 og ná sundurliðuð gögn KTN um launaþróun frá upphafi samningslotunnar fram til janúar 2026. Áætlað er að nærri 260 kjarasamningar hafi nú verið undirritaðir í kjarasamningslotunni fyrir allflest launafólk bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Óloknir samningar eru fáir og ná til um 1% launafólks. Á tímabilinu komu þrjár samningsbundnar launahækkanir til framkvæmda á almenna markaðnum en tvær á hinum opinbera.

Frá febrúar 2024 til janúar 2026 hækkaði grunntímakaup sem hér segir:

  • Á almennum markaði um 17,0%,
  • Hjá ríki um 14,8%,
  • Hjá Reykjavíkurborg um 13,8%
  • Hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 15,3%.

Um helmingur samningstímans er nú liðinn og hefur verðbólga á tímabilinu reynst þrálátari en spáð var í aðdraganda samninganna. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar á tímabilinu jókst kaupmáttur grunntímakaups frá febrúar 2024 til janúar 2026 sem hér segir:

  • Á almennum vinnumarkaði  um 7,8% 
  • hjá ríki um 5,7%,
  • hjá Reykjavíkurborg um 4,8%
  • hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 6,1%.

Þá kemur fram að almennt var samið til fjögurra ára og farin blönduð leið krónutölu- og prósentuhækkana. Samningsbundnar launahækkanir eru því hlutfallslega mestar á lægri laun. Samningar Kennarasambands Íslands við ríki og sveitarfélög voru frábrugðnir öðrum samningum vegna áherslu á virðismat.

Í Kjaratölfræðinefnd sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, þar á meðal hagfræðingur BSRB, fulltrúar ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands.

Vorskýrslu 2026 ásamt fylgigögnum má finna á vef kjaratölfræðinefndar ktn.is.