Umsögn um tillögu til þingsályktunar um stefnu og aðgerðir gegn fátækt barna
BSRB hefur tekið til umsagnar drög að heildstæðri stefnu og aðgerðaráætlun gegn fátækt barna til ársins 2031. BSRB fagnar því að stjórnvöld setji fram stefnu í málaflokknum í fyrsta sinn, enda er barátta gegn fátækt barna meðal mikilvægustu verkefna stjórnvalda á hverjum tíma.

Börn sem búa við fátækt njóta mun færri tækifæra en jafnaldrar þeirra í sterkari efnahagslegri stöðu og áhrifin geta varað út ævina og haft áhrif á lífsgæði og atvinnutekjur, auk mikilla samfélagslegra áhrifa og kostnaðar. Markmið stefnunnar um að öll börn fái tækifæri til að njóta sín, þroskast og dafna óháð efnahag og félagslegri stöðu fjölskyldu sinnar rímar vel við grundvallaráherslur í stefnu BSRB. Bandalagið leggur áherslu á að samfélag jafnaðar verði ekki byggt nema allar fjölskyldur geti boðið börnum sínum sömu tækifæri óháð efnahag og búsetu. Öflug almannaþjónusta og tilfærslukerfi eru grundvallarforsenda jöfnuðar.
Í stefnunni eru sett fram mikilvæg verkefni, meðal annars um fjárhagslegan stuðning við barnafjölskyldur og jafnt aðgengi að grunnþjónustu og frístundastarfi. Stefnan felur þó fyrst og fremst í sér frekari greiningar og kortlagningu, en ekki beinar fjármagnaðar aðgerðir. Nú þegar liggja fyrir töluverðar upplýsingar um það hvaða þættir hafa mest áhrif á afkomu barnafjölskyldna og hvar helstu hindranirnar liggja. Í greinargerð með tillögunni er m.a. vísað til skýrslu forsætisráðuneytisins sem kom út fyrr á þessu ári og niðurstaðna rannsókna Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem í fjölmörg ár hefur bent á þrönga stöðu barnafjölskyldna, ekki síst barna einstæðra foreldra, fólks af erlendum uppruna og þeirra sem eru á leigumarkaði.
Barnabætur og fjárhagslegur stuðningur við barnafjölskyldur
Fyrsta aðgerð stefnunnar fjallar um að gera eigi heildstæða greiningu á opinberum fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur, þar á meðal á barnabótakerfinu. Mikilvægt er að samspil tilfærslukerfanna og áhrif tekjutenginga á ólíka hópa sé reglulega skoðað. Hins vegar hefur BSRB um árabil bent á veikleika íslenska barnabótakerfisins og sett fram tillögur um hvernig megi bæta það. Í stefnu BSRB kemur fram að endurskoða þurfi barnabótakerfið frá grunni, bætur eigi ekki að skerðast fyrr en við meðaltekjur, bætur fylgi launaþróun og séu þær sömu fyrir öll börn óháð aldri. Þrátt fyrir að umbætur hafi verið gerðar á barnabótakerfinu í tengslum við undirritun kjarasamninga vorið 2024 þá náðu þær skammt og bæturnar hafa rýrnað að verðgildi á yfirstandandi ári og munu að öllu óbreyttu halda áfram að rýrna á því næsta. Það er því afstaða BSRB að stjórnvöld ættu að ganga lengra en eingöngu að kortleggja kerfin, heldur setja fram raunhæfar tillögur um hvernig megi efla stuðningskerfin á gildistíma stefnunnar.
Jafnt aðgengi að almannaþjónustu
Í tillögunni er viðurkennt að fátækt barna snúist ekki eingöngu um tekjur fjölskyldna heldur einnig aðgang að þjónustu og samfélagslegri þátttöku. Eitt meginhlutverk hins opinbera er að halda úti öflugu velferðarkerfi þar sem öllum er tryggð örugg framfærsla, framúrskarandi heilbrigðis- og félagsþjónusta, menntun og öryggi, óháð búsetu og efnahag. Gert er ráð fyrir því að kortleggja kostnað sem hamlar aðgengi barna að grunnþjónustu og draga úr kostnaði vegna frístundastarfs og skólatengdra viðburða. Þetta er mikilvægt. Kannanir Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, hafa sýnt að hluti foreldra á erfitt með að standa straum af kostnaði vegna frístundar, sumarnámskeiða, skólaferðalaga og annarra skipulagðra tómstunda. Þar eru innflytjendur og fólk með erlendan bakgrunn í sérstaklega slæmri stöðu, en yfir þriðjungur þeirra lýsir þessum erfiðleikum.[1] Sérstaklega mikilvægt er fyrir börn af erlendum uppruna að hafa aðgang að þessari þjónustu.
Leikskólar og umönnun barna
BSRB telur ástæðu til að leikskólaþjónusta fái meira vægi í aðgerðaráætluninni. Leikskólar eru ekki gjaldfrjálsir og börn eiga ekki rétt á leikskólaplássi að loknu fæðingarorlofi, en skortur á leikskólaplássum getur leitt til mikils kostnaðar vegna annars konar dagvistunar, auk áhrifa á tekjur foreldra, fyrst og fremst mæðra sem draga úr atvinnu til þess að brúa bilið. Engin sjálfstæð aðgerð í stefnunni snýr sérstaklega að leikskólaþjónustu.
BSRB hefur lengi lagt mikla áherslu á leikskólann sem mikilvæga stofnun sem veitir börnum jöfn tækifæri og menntun og gerir foreldrum kleift að taka þátt á vinnumarkaði. Síðustu ár hafa fjölmörg sveitarfélög skert leikskólaþjónustu verulega og samhliða því hækkað gjöld fyrir venjulega vistun. Á síðasta kjörtímabili hækkuðu leikskólagjöld fyrir 8 tíma vistun um allt að 85%, og víðast hvar í stærstu sveitarfélögum yfir 25%.[2] Í könnun Vörðu um stöðu barnafjölskyldna kemur fram að 12% foreldra eiga erfitt með að greiða fyrir leikskólagjöld eða eins langan vistunartíma og hentar. Það á við um yfir 20% innflytjenda og fólks með erlendan bakgrunn.
Að mati BSRB ættu stjórnvöld nú þegar að ráðast í að lögfesta rétt barna til leikskólavistar strax að loknu fæðingarorlofi og sveitarfélög ættu að snúa af þeirri leið að beita skammtímalausnum og þjónustuskerðingum í stað þess efla leikskólakerfið.
Húsnæðisöryggi
Í greinargerð með tillögunni er fjallað um að húsnæðisöryggi sé mikilvæg forsenda þess að draga úr fátækt barna og að tekjulágar fjölskyldur á leigumarkaði geti búið við mikla óvissu. Þar segir þó jafnframt að húsnæðismál séu ekki hluti af stefnunni þar sem önnur vinna sé í gangi hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. BSRB leggur mikla áherslu á að staða barnafólks, ekki síst leigjenda, verði leiðarljós í þeirri vinnu. Almenna íbúðarkerfið er lykillinn að húsnæðisöryggi lágtekjufólks og einstæðra foreldra. Það er því alvarlegt að flest sveitarfélög hafi ekki unnið sérstaklega að því að tryggja uppbygginu almennra íbúða fyrir íbúa sína.
Fjármögnun og framkvæmd
Í fyrirliggjandi drögum kemur fram að kostnaðarmat aðgerðanna standi yfir og því er ekki unnt að leggja mat á þann þátt stefnunnar. BSRB vekur þó athygli á því að stór hluti þeirrar þjónustu sem fjallað er um í stefnunni er á ábyrgð sveitarfélaga. Það þarf því að gæta þess að tryggja þeim fullnægjandi fjármagn til þess að standa straum af kostnaði við aðgerðirnar.
Fyrir hönd BSRB
Dagný Aradóttir Pind
lögfræðingur
[1] Varða, Staða launafólks 2025, bls. 47 og Barnafjölskyldur á Íslandi (2026), bls. 32.
[2] BSRB, Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu?