Trúnaðarmannaráðsfundur – fræðsla, samtal og næstu skref
Trúnaðarmannaráð Sjúkraliðafélags Íslands kom saman á Hótel Örk 24. og 25. september. Trúnaðarmenn víðs vegar að af landinu tóku þátt ásamt stjórn og starfsfólki félagsins. Fundurinn var bæði fræðandi og uppbyggilegur. Dagskráin gaf gott rými fyrir fræðslu, samtal og samveru og skapaði trúnaðarmönnum tækifæri til að deila reynslu sinni af vinnustöðum og ræða þau verkefni sem brýnast er að vinna að.

Á fundinum var meðal annars fjallað um stöðuna á vinnumarkaði, gervigreind og framtíðina, forvarnir og Betri vinnutíma. Erindin tengdust með beinum hætti þeim áskorunum sem sjúkraliðar mæta í daglegu starfi, svo sem breytingum á vinnumarkaði, áhrifum tækni, mikilvægi heilsu og líðanar og því hvernig vaktaskipulag hefur áhrif á starfsfólk. Einnig gafst tími til samveru og óformlegra samtala.

Gunnar Örn Gunnarsson, frkvstj. SLFÍ, ræddi um stöðuna á vinnumarkaði 
Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK, flutti erindi um forvarnir
Það skiptir máli að trúnaðarmenn fái tækifæri til að kynnast, styrkja tengsl sín og byggja upp traust sem nýtist í trúnaðarmannastarfinu.
Í hópastarfi ræddu trúnaðarmenn hvað skiptir sjúkraliða mestu máli á vinnustöðum. Umræðurnar snerust einkum um fjóra þætti: trúnaðarmannastarf og samskipti við félagið, fræðslu og starfsþróun, mönnun og starfsumhverfi og loks kjör og framkvæmd kjarasamninga.
Trúnaðarmannaráðsfundur 2026
Meðal þess sem kom fram var þörf fyrir skýrari upplýsingar og enn betri stuðning við trúnaðarmenn, aukin tækifæri til fræðslu og betra aðgengi að námskeiðum um allt land. Einnig var lögð áhersla á að þekking og færni sjúkraliða fái að nýtast betur á vinnustöðum og að aukin ábyrgð endurspeglist í verkefnum, starfslýsingum og kjörum. Mönnun var fyrirferðarmikið umræðuefni. Trúnaðarmenn ræddu áhrif manneklu og álags, mikilvægi þess að fjölga faglærðu starfsfólki og tryggja góð hjálpartæki. Þá komu fram sjónarmið um vaktahvata, styttri vaktir, vetrarfrí og þörf fyrir sanngjarnara og skiljanlegra vaktakerfi. Einnig var rætt um stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir sjúkraliða, þar sem hægt væri að leita aðstoðar þegar upp koma erfið mál í starfsumhverfinu eða samskipti og teymisvinna ganga ekki sem skyldi.
Niðurstöður hópastarfs kynntar
Hópastarfið gaf trúnaðarmönnum mikilvægt tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og deila reynslu sinni af vinnustöðum. Framlag þeirra er mikilvægt fyrir félagið og gefur góða mynd af því sem brýnast er að vinna að á næstu misserum. Niðurstöður hópastarfsins verða núna teknar til frekari úrvinnslu. Farið verður yfir áherslur, forgangsröðun verkefna og mat lagt á hvernig þær geta tengst stefnu og verkefnum félagsins, kjaramálum, fræðslu og áframhaldandi hagsmunabaráttu. Sum verkefni verða unnin áfram innan félagsins, önnur í samstarfi við vinnuveitendur og stjórnvöld og enn önnur tengjast næstu kjarasamningum og stofnanasamningum.
Ég vil þakka trúnaðarmönnum fyrir góða þátttöku, mikilvægar ábendingar og gott samstarf. Trúnaðarmannaráðsfundurinn sýndi enn á ný hversu mikilvægt er að hafa öflugt trúnaðarmannakerfi og virkt samtal við sjúkraliða um allt land.
Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands













