Þekking sjúkraliða í þágu sjúklinga
Í dag, 26. nóvember, er Evrópudagur sjúkraliða. Dagurinn er tilefni til að vekja athygli á þeirri þekkingu og ábyrgð sem felst í störfum stéttarinnar. Fólk sem þarfnast hjúkrunar þarf að geta treyst því að fagfólk hafi bæði hæfni og svigrúm til að sinna þörfum þess. Þar skiptir framlag sjúkraliða miklu.

Að deginum standa Evrópusamtök sjúkraliða, European Council of Practical Nurses (EPN). Sjúkraliðafélag Íslands er eitt af aðildarfélögum samtakanna. Innan EPN vinna aðildarfélögin að því að efla menntun og faglega stöðu sjúkraliða og bæta starfsumhverfi þeirra.
Á stjórnarfundi samtakanna í Reykjavík í nóvember 2025 komu fram sameiginlegar áhyggjur af manneklu, álagi og brotthvarfi úr starfi. Ályktun fundarins lagði áherslu á starfsþróun og starfsaðstæður sem taka mið af aldri starfsfólks. Jafnframt var lögð áhersla á viðurkenningu faglegra réttinda yfir landamæri og vernd sjúkraliða gegn misnotkun og versnandi starfsskilyrðum.
Fagleg ábyrgð í daglegri hjúkrun
Sjúkraliðar eru löggiltir heilbrigðisstarfsmenn. Grunnnám þeirra sameinar fræðilega þekkingu og verklega þjálfun og undirbýr þá fyrir hjúkrun, umönnun og endurhæfingu. Til að starfa sem sjúkraliði þarf starfsleyfi landlæknis. Í gildandi reglugerð er skýrt kveðið á um að sjúkraliði beri ábyrgð á störfum sínum í samræmi við menntun, þjálfun og færni. Jafnframt ber honum að viðhalda þekkingu sinni og þekkja faglegar takmarkanir sínar.
Á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum og í heimahjúkrun eru sjúkraliðar í nánum samskiptum við fólkið sem þeir annast. Þeir fylgjast með líðan þess og færni, sinna hjúkrun og styðja fólk við athafnir daglegs lífs. Þegar sjúkraliði aðstoðar einstakling við að borða eða komast á fætur gefst jafnframt tækifæri til að taka eftir breytingum á heilsufari hans. Athuganir, skráning og miðlun upplýsinga til samstarfsfólks eru hluti af þessari faglegu vinnu.
Grunnhjúkrun krefst þekkingar og dómgreindar. Aðstoð þarf að taka mið af ástandi hvers og eins og styðja við þá færni sem viðkomandi hefur. Virðing fyrir sjálfsákvörðunarrétti og skilningur á aðstæðum sjúklings eru samofin framkvæmdinni. Þannig birtast ábyrgð, alúð og umhyggja í daglegum störfum sjúkraliða.
Þetta framlag þarf að vera sýnilegt þegar þjónustan er skipulögð. Mönnun þarf að taka mið af hjúkrunarþörfum og þeirri hæfni sem verkefnin krefjast. Skýr verkaskipting og fagleg samvinna sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna skapa forsendur fyrir því að þekking hvers og eins nýtist sjúklingum.
Aðstæður til að nýta menntunina
Með 60 ECTS eininga diplómanám við Háskólann á Akureyri hafa sjúkraliðar fengið aukin tækifæri til starfsþróunar. Þar geta starfandi sjúkraliðar aflað sér viðbótarmenntunar í samfélagsgeðhjúkrun eða öldrunar- og heimahjúkrun. Námið eflir klíníska færni og hæfni til fræðslu, teymisvinnu og forystu. Gildandi reglugerð skilgreinir jafnframt sérhæfða sjúkraliða og kveður á um að taka skuli tillit til viðbótarmenntunar við mat á faglegri færni og ábyrgð.
Til að sú menntun skili sér í þjónustunni þurfa stjórnendur að fela sjúkraliðum verkefni í samræmi við hæfni þeirra. Starfslýsingar og verklag þurfa að styðja þá þróun og launakjör að endurspegla menntun og ábyrgð. Sjúkraliðar þurfa einnig að hafa aðgang að þeim upplýsingum og þeirri faglegu ráðgjöf sem þeir þurfa til að sinna verkefnum sínum af öryggi.
Traust grunnnám er undirstaða þessarar þróunar. Efla þarf sjúkraliðanámið og tryggja nemendum vandaða verklega þjálfun og leiðsögn. Jafnframt þarf að styðja þá sem þegar starfa við fagið til að viðhalda og auka þekkingu sína. Starfsþróun á að vera raunhæfur kostur fyrir sjúkraliða á öllum starfsferlinum.
Nýliðun og starfsþróun þurfa að haldast í hendur við aðgerðir sem gera fólki kleift að vera áfram í starfi. Til þess þarf viðráðanlegt vinnuálag, góða mönnun og vaktaskipulag sem gefur færi á hvíld. Þessar aðstæður varða einnig gæði þjónustunnar. Sjúkraliði þarf tíma til að hlusta á sjúkling, fylgja eftir breytingum á líðan hans og veita þá hjúkrun sem sjúklingurinn þarfnast.
Á Evrópudegi sjúkraliða hvet ég stjórnvöld og stjórnendur heilbrigðisstofnana til að hafa sjúkraliða með í ráðum þegar ákvarðanir eru teknar um mönnun, menntun og þróun þjónustunnar. Sjúkraliðar búa yfir þekkingu sem þarf að fá að nýtast. Það þjónar fyrst og fremst hagsmunum fólksins sem þarfnast hjúkrunar.
Ég óska sjúkraliðum um land allt til hamingju með daginn og þakka þeim fyrir fagmennsku og umhyggju í þágu sjúklinga og aðstandenda.
Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
Greinin var fyrst birt á visir.is

