Opið fyrir umsóknir vegna nýrra leiguíbúða
Um er að ræða fjölbýlishús á 3-5 hæðum með þremur stigahúsum og verða íbúðirnar tveggja til sex herbergja. Félagsbústaðir eiga og munu leigja út hluta íbúðanna í Haukahlíð 18. Staðsetningin er í nálægð útivistarsvæðanna í Öskjuhlíð og Nauthólsvík, í göngufæri við háskólana, og Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Íþróttaaðstaða er innan Hlíðarendasvæðis.

Hér má sjá Haukahlíð á korti.
Spurt og svarað um Bjarg íbúðafélag.
1-2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 39,4-49,5 m²
- Fjöldi íbúða: 20
- Dæmigerð 1-2ja herbergja íbúð í Haukahlíð
1-2ja herbergja íbúðirnar eru 39,4 - 49,5 m². Um er að ræða anddyri, svefnherbergi sem stúkað er af með rennihurð, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í kjallara, og í hjónaherbergi er fataskápur. Sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á efri hæðum.
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að eiga sér stað á byggingartíma.
2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 48,9-51,1 m²
- Fjöldi íbúða: 5
- Dæmigerð 2ja herbergja íbúð í Haukahlíð
Tveggja herbergja íbúðirnar eru 48,9 - 51,1 m². Um er að ræða svefnherbergi, anddyri, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými eru í skápum innan íbúðar og í kjallara, og í hjónaherbergi er fataskápur. Sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á efri hæðum.
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að eiga sér stað á byggingartíma.
3ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 2
- Stærð íbúða: 56,1-73,1 m²
- Fjöldi íbúða: 30
- Dæmigerð 3ja herbergja íbúð í Haukahlíð
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 56,1 - 73,1 m². Um er að ræða anddyri, tvö svefnherbergi, stofu/eldhús og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í kjallara, og í hjónaherbergi er fataskápur. Sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á efri hæðum.
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að eiga sér stað á byggingartíma.
4ra herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 3
- Stærð íbúða: 75,6-95,6 m²
- Fjöldi íbúða: 9
- Dæmigerð 4ra herbergja íbúð í Haukahlíð
Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 75,6 - 95,6 m². Um er að ræða þrjú svefnherbergi, anddyri, stofu/eldhús og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í kjallara, og í hjónaherbergi er fataskápur. Sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á efri hæðum.
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að eiga sér stað á byggingartíma.
5 herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 4
- Stærð íbúða: 91,4-98,7 m²
- Fjöldi íbúða: 4
- Dæmigerð 5 herbergja íbúð í Haukahlíð
Fimm herbergja íbúðirnar eru 91,4 - 98,7 m². Um er að ræða fjögur svefnherbergi, anddyri, alrými með eldhús/stofu og baðherbergi. Geymslurými eru í skápum innan íbúðar og í kjallara, og í hjónaherbergi er fataskápur. Sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á efri hæðum.
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að eiga sér stað á byggingartíma.
6 herbergja íbúð
- Fjöldi svefnherbergja: 5
- Stærð íbúða: 125,1 m²
- Fjöldi íbúða: 1
- 6 herbergja íbúð í Haukahlíð
Ein sex herbergja íbúð er í Haukahlíð og er hún 125,1 m². Íbúðin er endaíbúð á efstu hæð, tvennar svalir eru í íbúðinni og snúa þær í suður og norður. Íbúðin skiptist í anddyri, fimm svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi/stofu. Geymslurými eru í skápum innan íbúðar og í kjallara, og í hjónaherbergi er fataskápur.
Teikningar eru settar inn með fyrirvara um breytingar sem kunna að eiga sér stað á byggingartíma.
