Beint í efni

Sjúkraliðar í sextíu ár

Þegar Valgerður Eyjólfsdóttir lauk sjúkraliðanámi á Landakoti árið 1966 voru aðeins fáeinir mánuðir síðan starfsheitið sjúkraliði kom fyrst fyrir sjónir landsmanna í dagblöðunum.

21. nóvember 2026

Valgerður hafði samband við nýútskrifaða starfsfélaga á öðrum sjúkrahúsum og saman boðuðu sex sjúkraliðar til fundar í Aðalstræti 12 í Reykjavík. Þar var Sjúkraliðafélag Íslands stofnað 21. nóvember 1966. Stofnfélagarnir voru 48, þar af fjórtán frá Akureyri.

Sjúkraliðanámið átti rætur sínar á sjúkrahúsunum. Kennsla hófst á Akureyri og á Landakoti haustið 1965. Nemendur sóttu bóklega tíma og lærðu hjúkrun á deildunum undir leiðsögn reynds fagfólks. Þessi tengsl náms og starfs hafa haldist. Í dag, líkt og í upphafi, læra sjúkraliðar að þekkja þarfir fólks með því að sinna því, fylgjast með líðan þess og taka eftir breytingum sem kalla á viðbrögð. Þannig nýtist menntun þeirra á sjúkrahúsum, á hjúkrunarheimilum og heima hjá fólki um land allt.

Rétturinn til að semja sjálf

Fyrsta aldarfjórðunginn var Sjúkraliðafélag Íslands fagfélag. Þar gátu sjúkraliðar sameinast um menntun sína og starfssvið, en þegar kom að launum réð vinnustaður og búseta því hvaða félag samdi fyrir þeirra hönd. Um tíma var samningsréttur stéttarinnar dreifður á um 27 starfsmannafélög. Það gat því verið langt frá umræðu sjúkraliða á félagsfundi að ákvörðun um hvernig ætti að meta menntun þeirra til launa.

Þetta breyttist árið 1991 þegar Sjúkraliðafélag Íslands varð sjálfstætt stéttarfélag undir forystu Kristínar Á. Guðmundsdóttur. Hinn 8. desember 1992 undirritaði félagið sinn fyrsta kjarasamning við ríkið. Sjúkraliðar sátu nú sjálfir við samningaborðið, settu fram eigin kröfur og báru ábyrgð á niðurstöðunni gagnvart félögum sínum.

Tveimur árum síðar reyndi á samstöðuna. Verkfall sjúkraliða hófst 10. nóvember 1994 og stóð í sjö vikur, allt til 30. desember. Meðan á deilunni stóð þurfti félagið bæði að sinna undanþágum svo sjúklingar fengju nauðsynlega þjónustu og aðstoða félagsmenn sem urðu fyrir verulegum tekjumissi þegar leið að jólum. Á fulltrúaþingi vorið eftir stofnuðu sjúkraliðar vinnudeilu- og verkfallssjóð. Reynslan af þessum sjö vikum hafði kennt þeim hvað það kostaði félagsmenn og fjölskyldur þeirra að standa í langri kjaradeilu.

Frá sjúkrahúsunum til háskólans

Menntun sjúkraliða hefur tekið miklum breytingum á þessum sextíu árum. Sjúkraliðaskóli Íslands tók til starfa árið 1975 og síðar festist námið í sessi innan framhaldsskólanna. Grunnnámið er hagnýtt og sniðið að þörfum hjúkrunar. Á því byggir nú einnig fagnám við Háskólann á Akureyri þar sem starfandi sjúkraliðar geta sérhæft sig í öldrunar- og heimahjúkrun eða samfélagsgeðhjúkrun. Fyrsti hópurinn lauk diplómaprófi árið 2023.

Strax á aðalfundi félagsins 1972 kölluðu sjúkraliðar eftir því að starfssvið þeirra tæki mið af menntun þeirra. Rúmri hálfri öld síðar reynir á þetta sama atriði með nýjum hætti. Þegar sjúkraliði lýkur sérhæfðu námi meðfram starfi þurfa að vera til störf þar sem sú menntun nýtist. Þar bera stjórnendur heilbrigðisstofnana ábyrgð. Þeir ákveða hvaða verkefni sjúkraliðum eru falin og hvernig þekking þeirra nýtist sjúklingum. Aukinni ábyrgð þurfa jafnframt að fylgja viðeigandi kjör.

Á sextíu ára afmæli Sjúkraliðafélags Íslands er ástæða til að þakka þeim 48 sjúkraliðum sem stofnuðu félagið og þeim sem síðan hafa bor ið uppi starf þess. Fólkið sem nýtur hjúkrunarinnar á hverjum degi hefur mestan hag af því að vel takist til við næsta verkefni okkar, að mennta fleiri sjúkraliða og búa svo að þeim í starfi að þeir vilji þar vera.

Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands

Birtist fyrst í Morgunblaðinu 21. nóvember 2026