Réttaröryggi sjúkraliða verður að tryggja
Sjúkraliðafélag Íslands stendur þétt við bakið á félagsmanni sínum sem sætti handtöku og lögreglurannsókn vegna andláts á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Rannsókninni hefur nú verið hætt þar sem ekki reyndist grundvöllur til að halda henni áfram.

Málið er afar alvarlegt. Félagsmaður okkar var sviptur frelsi, fékk réttarstöðu sakbornings og bjó um tíma við grun um aðild að einu alvarlegasta broti sem einstaklingur getur verið sakaður um. Slík reynsla getur haft djúpstæð áhrif á heilsu, fjölskyldulíf, starfsferil og mannorð, þótt rannsókn sé síðar hætt.
Sjúkraliðafélag Íslands mun áfram standa með félagsmanni sínum og leggja áherslu á að viðkomandi fái viðeigandi stuðning. Vinnuveitanda ber jafnframt að tryggja vandaða og örugga endurkomu til starfa, eftir því sem aðstæður og óskir félagsmannsins leyfa.
Alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu verður að rannsaka af festu, fagmennsku, nærgætni og óhlutdrægni. Öryggi sjúklinga skal ávallt vera í fyrirrúmi. Rannsóknir verða þó einnig að byggjast á meðalhófi, viðeigandi sérþekkingu og heildstæðu mati á öllum aðstæðum máls, þar á meðal mönnun, vinnuálagi, verkferlum, stjórnun og öðrum kerfislægum þáttum.
Sjúkraliðar og annað heilbrigðisstarfsfólk annast daglega fólk sem glímir við alvarleg veikindi og þar sem andlát geta verið hluti af þeirri þjónustu sem veitt er. Áður en gripið er til íþyngjandi rannsóknarúrræða þarf, eftir því sem lög og atvik leyfa, að liggja fyrir faglegt frummat á því sem gerðist og hvort eðlilegar skýringar geti verið á atvikinu. Slíkur farvegur getur jafnframt verið skjólstæðingum og aðstandendum afar þungbær, ekki síst þegar síðar kemur í ljós að grunur átti ekki við rök að styðjast.
Sjúkraliðafélag Íslands mun fylgja því fast eftir að stjórnvöld ljúki þeirri vinnu sem lög nr. 103/2023 kveða á um. Félagið krefst þess að niðurstöður starfshóps um óháða málsmeðferð verði birtar og þeim fylgt eftir, að sérstök fyrirmæli um rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu verði sett og birt, - og að til staðar sé skýrt, samræmt og opinbert verklag sem tryggir réttindi sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsmanna.
Ekki verður sætt við áframhaldandi óvissu um réttarstöðu heilbrigðisstarfsmanna. Sjúkraliðar verða að geta gengið til ábyrgðarmikilla starfa án þess að óttast að verða persónulega gerðir ábyrgir fyrir alvarlegu atviki áður en faglegt og heildstætt mat hefur farið fram.
Hugur okkar er hjá aðstandendum hinnar látnu. Virðing fyrir sorg þeirra og stuðningur við heilbrigðisstarfsmann sem sætti alvarlegri rannsókn fara saman. Enginn sjúkraliði á að standa einn þegar frelsi hans, starfsheiður og framtíð eru undir. Sjúkraliðafélag Íslands stendur með félagsmanni sínum og mun vinna að því að réttaröryggi sjúkraliða verði tryggt.
Sandra B. Franks
formaður Sjúkraliðafélags Íslands