Minning um Gunnar Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjúkraliðafélags Íslands, er látinn.
Félagið minnist hans með þakklæti fyrir störf hans í þágu sjúkraliða.

Gunnar gegndi starfi framkvæmdastjóra félagsins á árunum 1990–2008. Hann átti mikilvægan þátt í undirbúningi og uppbyggingu þess að móta sjálfstætt stéttarfélag, í samstarfi við Kristínu Á. Guðmundsdóttur, þáverandi formann, Birnu Ólafsdóttur þáverandi skrifstofustjóra og stjórn félagsins. Reynsla hans og þekking á stéttarfélagsmálum voru dýrmæt þegar sjúkraliðar tóku samningsmál sín í eigin hendur.
Sjúkraliðafélag Íslands þakkar Gunnari mikilvægt framlag hans til uppbyggingar félagsins og baráttunnar fyrir bættum kjörum og réttindum sjúkraliða. Hann var einn þeirra sem lögðu grunn að sjálfstæðri hagsmunagæslu stéttarinnar og því félagsstarfi sem við höldum áfram í dag. Við minnumst hans með virðingu og þakklæti fyrir störf hans í þágu sjúkraliða og vottum fjölskyldu hans og ástvinum einlæga samúð. Útör hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. október klukkan 13:00.
Fyrir hönd Sjúkraliðafélags Íslands,
Sandra B. Franks, formaður