Beint í efni

Þekking sjúkraliða þarf að nýtast og vera metin

Á hverri vakt reynir á fagþekkingu og dómgreind sjúkraliða. Sú ábyrgð þarf að sjást í kjörunum og þekkingin að nýtast í þjónustunni. Þetta tengir saman þrjú verkefni sem félagið vinnur nú að: virðismat starfa, innleiðingu sérhæfingar og uppfærslu stofnanasamninga.

18. september 2026

Rödd sjúkraliða í virðismatinu

Jafnlaunastofa vinnur að virðismati starfa hjá ríkinu þar sem störf sjúkraliða eru til skoðunar. Markmiðið er að draga fram hvað störfin fela í sér og þær kröfur sem þeim fylgja. Þar skiptir reynsla sjúkraliða sjálfra miklu máli.

Erfiðlega hefur reynst að ná til félagsmanna sem lentu í úrtakinu og fá svör þeirra. Það veldur mér áhyggjum. Við þurfum að tryggja að ábyrgð sjúkraliða og fjölbreytni starfanna komist til skila í matinu. Jafnframt þurfum við að kanna hvort upplýsingarnar hafi náð til fólks og hvað geti auðveldað þátttöku þess.

Ég hvet ykkur sem hafið fengið erindi frá Jafnlaunastofu vegna verkefnisins til að kynna ykkur það og taka þátt. Leitið til skrifstofu félagsins ef þið þurfið leiðbeiningar. Þið þekkið starfið af eigin raun og lýsingar ykkar geta styrkt grundvöll baráttunnar fyrir sanngjörnu mati á störfum sjúkraliða.

Stofnanasamningar þurfa að gera ráð fyrir sérhæfingu

Í vikunni funduðum við með fulltrúum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Sjúkrahússins á Akureyri um uppfærslu stofnanasamninga. Félagið leggur mikla áherslu á að samningarnir geri skýrt ráð fyrir sérhæfðum sjúkraliðum og að launaröðun endurspegli viðbótarþekkingu þeirra, verkefni og ábyrgð. Því miður hefur heilbrigðiskerfið ekki lagað sig nægilega að þessari sérhæfingu. Erfiðlega hefur gengið að tryggja sjúkraliðum með viðbótarmenntun stöður þar sem þekking þeirra nýtist markvisst og launin taka mið af henni. Úr þessu þarf að bæta.

Krafa félagsins samræmist áherslum stjórnvalda. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp um mönnun, menntun og starfssvið sjúkraliða til framtíðar. Hópurinn á að vinna tillögur sem stuðla að sjálfbærri mönnun, fjölbreyttara menntunarframboði í samræmi við þarfir heilbrigðiskerfisins og betri nýtingu menntunar og sérhæfðrar hæfni sjúkraliða. Þar er sérstaklega lögð áhersla á að efla hlutverk sjúkraliða með viðbótarmenntun í samstarfi við heilbrigðisstofnanir. Ég fagna þessu skrefi. Og munum við tryggja að áhersla okkar verði fylgt eftir með raunhæfri innleiðingu á stofnununum.

Viðræður um stofnanasamninga hafa reynst verulega krefjandi og erfiðar. Þær fara fram á friðarskyldutíma. En þá er ekki heimilt að knýja fram breytingar á því sem þegar hefur verið samið um með verkfalli. Þetta takmarkar þrýstingsúrræði félagsins og gerir samningsvilja stofnananna sérstaklega mikilvægan. Þá reynir á þrautseigju og þolinmæði og fylgjum við því fast eftir að áherslur félagsins skili sér inn í stofnanasamningana.

Trúnaðarmenn koma saman á Hótel Örk

Við höfum einnig unnið að undirbúningi trúnaðarmannaráðsfundar sjúkraliða sem haldinn verður á Hótel Örk að þessu sinni. Fundurinn er mikilvægur vettvangur til að miðla reynslu af vinnustöðum og ræða sameiginleg hagsmunamál.

Boðað verkfall flugvirkja hefur þó sett strik í reikninginn fyrir þá sem koma af landsbyggðinni. Margir þurfa því að breyta plönum sínum og aka um langan veg til að geta tekið þátt.

Ég er þakklát fyrir þann vilja sem trúnaðarmenn sýna til að mæta, þrátt fyrir þessar hindranir. Vonandi leysast ferðamálin sem best og allir komast heilu og höldnu á fundinn. Ég hlakka til að hitta ykkur.

Góða helgi