Beint í efni

Þegar þrautseigjan skilar sér

Vikan að þessu sinni var heldur styttri en oft áður, enda þjóðhátíðardagurinn 17. júní í vikunni. En það breytir því ekki að það er alltaf nóg í gangi hjá félaginu og áfram hefur verið unnið að mikilvægum málum sem varða stöðu sjúkraliða, kjör þeirra og framtíð starfsins.

19. júní 2026

Rödd sjúkraliða skiptir máli

Eitt af þeim málum er virðismat starfa, sem áfram er í vinnslu. Starfsfólk félagsins hefur verið að fylgja málinu eftir, minna á þátttöku og hvetja þá félagsmenn sem lentu í úrtaki til að svara spurningalistanum. Það skiptir miklu máli að félagsmenn sem fá slíkt boð taki þátt. Svörin eru mikilvægur grunnur að því að störf sjúkraliða verði metin með réttum, málefnalegum og sanngjörnum hætti. Þarna skiptir rödd sjúkraliða raunverulegu máli.

Þá liggur nú fyrir breyting á raunfærnimati sjúkraliða, en nýir mats- og skimunarlistar tóku gildi 16. júní 2026. Samkvæmt nýjum matslista eru nú ellefu áfangar til mats. Jafnframt kemur skýrar fram í skimunarlistanum að gerð er krafa um að lágmarki þriggja ára starfsreynslu og starfsvottorð, auk þess sem ákveðin skilyrði gilda um mat á tilteknum áföngum eftir starfsreynslu viðkomandi. Þessar breytingar koma ekki úr tómarúmi. Að baki liggur langt samtal, mikil samskipti og málefnaleg eftirfylgni við hlutaðeigandi aðila. Það skiptir máli að halda slíku samtali áfram af yfirvegun og festu. Félagið mun áfram fylgjast vel með framvindunni og kalla eftir frekari skýringum og rökstuðningi þar sem þess er þörf.

Metnaður sem styrkir stéttina

Ein ánægjulegasta stund vikunnar var brautskráning 27 sjúkraliða frá Háskólanum á Akureyri úr fagháskólanámi á kjörsviði öldrunar og heimahjúkrunar. Það er ekki lítið afrek að bæta við sig námi, dýpka faglega þekkingu sína og styrkja sig í starfi, ekki síst á sviði sem verður sífellt mikilvægara í íslensku heilbrigðiskerfi.

Þessi hópur lét til sín taka í náminu, sýndi metnað, fagmennsku og vilja til að vaxa áfram í starfi. Það er einmitt þannig sem stéttin eflist; þegar sjúkraliðar fá tækifæri til að byggja ofan á reynslu sína, þekkingu og færni. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan merka áfanga og hlökkum til að fylgjast með þeim áfram. Það er full ástæða til að vera stolt af þessum öfluga hópi.

Mikilvæg leiðrétting í höfn

Þá liggur nú fyrir undirritað áfangasamkomulag vegna sjúkraliða hjá sveitarfélögunum. Samkomulagið felur í sér að starfsfólk í tilgreindum störfum, þar sem gerð er krafa um starfsleyfi sjúkraliða, fær þrjá launaflokka til viðbótar við grunnröðun. Breytingin gildir frá 1. apríl 2025 og vonir standa til að greiðslur komi til útborgunar um næstu mánaðamót, með afturvirkri greiðslu frá þeim tíma.

Þetta er mikilvægur áfangi. Hann leysir ekki öll mál, en hann skiptir máli. Hann sýnir að markviss vinna, samtal og þrautseigja skila árangri. Félagið mun fylgja framkvæmdinni vel eftir og gæta þess að leiðréttingin skili sér til þeirra sjúkraliða sem hún á að ná til.

Það er í svona vikum sem maður finnur vel hversu mörg mál eru á hreyfingu í einu; sum stór og sýnileg, önnur tæknilegri en engu að síður mikilvæg. Sameiginlegt með þeim öllum er að þau snúast um virðingu fyrir störfum sjúkraliða, skýrari stöðu stéttarinnar og réttláta viðurkenningu á þeirri ábyrgð sem sjúkraliðar bera á hverjum degi.