Reynsla sjúkraliða á að hafa vægi
Ég er nýkomin til Reykjavíkur eftir fund með sjúkraliðum á Norðurlandi. Við hittumst á Greifanum og ég vil þakka öllum sem mættu fyrir samveruna. Það er gott að hitta félagsfólk og gefa sér tíma til samtals. Þessir fundir eru mikilvægur hluti af starfi mínu sem formaður og tengja hagsmunagæslu félagsins við daglegan veruleika sjúkraliða.

Sjúkraliðar þekkja af eigin raun þær kröfur sem starfið gerir. Þeir vita hvað gengur vel, hvar skórinn kreppir og hvað þarf að bæta. Sú reynsla á að móta áherslur félagsins og hafa vægi þegar við ræðum við stjórnendur og fylgjum eftir kröfum um bætt kjör og starfsumhverfi.
Aðstæður geta verið ólíkar eftir vinnustöðum og landshlutum. Þess vegna þurfum við að hlusta á sjúkraliða um land allt og tryggja að ólík sjónarmið komist að. Þannig byggjum við upp sterkt félag sem þekkir aðstæður félagsfólks og talar af festu fyrir hagsmunum þess.
Starfið þarf að koma rétt fram
Í vikunni höfum við tekið þátt í rýnivinnu að starfasniði sjúkraliða í tengslum við virðismat starfa. Í þeirri vinnu skoðaði ég sérstaklega hvernig lýsing starfsins samræmist menntun sjúkraliða, hæfniviðmiðum námsins og reglugerð um starf þeirra.
Virðismat felur í sér að greina þær kröfur sem störf gera til þekkingar, færni og ábyrgðar, ásamt álagi og vinnuaðstæðum. Vönduð lýsing á innihaldi starfsins er því mikilvæg forsenda þess að matið verði málefnalegt og styðji við launajafnrétti. Fyrir okkur skiptir miklu að faglegt innihald sjúkraliðastarfsins komi skýrt fram. Við þekkjum störfin en það þarf að setja þau í orð, að fylgjast með líðan sjúklinga, greina breytingar, bregðast við innan eigin starfssviðs, miðla upplýsingum og skrá það sem máli skiptir. Samskipti við sjúklinga og aðstandendur, verkleg færni og leiðsögn þurfa einnig að fá viðeigandi vægi.
Við þurfum jafnframt að lýsa því hvernig verkefnin fara saman. Sjúkraliði getur þurft að sinna líkamlega erfiðu verki, fylgjast af athygli með ástandi sjúklings og mæta erfiðum tilfinningum á sama tíma. Almenn upptalning verkefna nær ekki alltaf utan um þær kröfur. Þess vegna skiptir þessi vinna máli. Það sem verður óskýrt í lýsingu starfsins getur orðið vanmetið í framhaldinu. Áhersla okkar er að þekking, fagleg ábyrgð og raunverulegar starfskröfur séu sýnilegar og myndi traustan grunn að réttlátu mati og sanngjörnum kjörum.
Vinnuheilsa er hluti af kjörunum
Vikan hófst á formannaráðsfundi BSRB í Reykholti. Samstarf aðildarfélaganna er mikilvægur vettvangur til að bera saman reynslu, ræða sameiginleg viðfangsefni og styrkja hagsmunagæslu fyrir launafólk.
Formannaráðsfundur BSRB í Reykholti
Fræðsla um vinnuheilsu var meðal viðfangsefna þessarar vinnuferðar og gaf tilefni til að hugsa um þær kröfur sem við gerum til starfsumhverfis sjúkraliða. Við eigum að geta sinnt störfum okkar af fagmennsku og átt starfsævi þar sem heilsan fær að njóta vafans.
Þar þurfum við að horfa á mönnun, vinnuskipulag, aðbúnað, stuðning stjórnenda og svigrúm til hvíldar og endurheimtar. Það þarf að vera hægt að benda á álag og óska eftir breytingum, og starfsfólk þarf að finna að brugðist sé við. Vinnuheilsa á því að vera fastur liður í samtali um kjör og gæði heilbrigðisþjónustunnar. Við þurfum að skapa aðstæður sem gera sjúkraliðum kleift að nýta þekkingu sína, þróast í starfi og endast í því.
Afmælið nálgast
Samhliða þessum verkefnum heldur undirbúningur 60 ára afmælis félagsins áfram. Í vikunni höfum við farið yfir efni í næsta tölublað Sjúkraliðans. Afmælisárið gefur okkur tilefni til að rifja upp söguna, heiðra framlag þeirra sem hafa byggt félagið upp og horfa til þess sem við viljum áorka næst. Sjúkraliðadagurinn og afmælishátíðin verða 19. nóvember og ég hlakka til að hitta ykkur þar, njóta fræðslu og fagna þessum áfanga saman.
Það er margt á dagskrá, en verkefnin tengjast. Samtalið við félagsfólk, vinnan við virðismat og áherslan á vinnuheilsu snúast öll um að styrkja stöðu sjúkraliða. Við viljum að fagþekking okkar sé nýtt, ábyrgðin viðurkennd og kjörin endurspegli verðmæti starfsins.
Takk fyrir vikuna og góða helgi!


