Réttindin stéttarinnar eiga sér sögu
Í tengslum við 60 ára afmæli félagsins hef ég verið á kafi í sögu Sjúkraliðafélags Íslands, hef safnað yfir 400 heimildum, meðal annars úr fjölmiðlum, til að ná betur utan um sögu þess og þróun stéttarinnar. Ein heimild leiðir að annarri og það er auðvelt að gleyma tímanum þegar maður fer að setja saman þessa mynd.

Ég hef líka skoðað lög, lagafrumvörp og reglugerðir sem hafa mótað nám og störf sjúkraliða. Þar er að finna sögu sem mig langar að deila með ykkur í þessum föstudagspistli. Hún snýst um hvað það þýddi að vera sjúkraliði á ólíkum tímum. Hvaða menntunar var krafist, hvaða störfum mátti sinna og hvernig ábyrgðin var skilgreind. Þegar þessar breytingar eru skoðaðar í samhengi verður mun skýrara hvers vegna þær skiptu máli fyrir fólkið sem valdi sér þetta starf.
Nám og starfsheiti fá formlega umgjörð
Á árinu 1965 var sett reglugerð um sjúkrahjálp. Þar var kveðið á um átta mánaða bóklegt og verklegt nám og að þau sem stæðust lokapróf hlytu starfsheitið sjúkraliði. Tilgangurinn var að þjálfa fólk til einfaldra hjúkrunarstarfa undir stjórn hjúkrunarkvenna. Sjálfstæð hjúkrunarstörf voru óheimil. Þarna voru sérstök menntun og starfsheiti formlega skilgreind, en starfssviðið þröngt afmarkað.

Fyrstu sjúkraliðarnir útskrifaðir 26. maí 1966, frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 
Nýútskrifaðir sjúkraliðar á Landspítala á upphafsárum menntunar sjúkraliða
Á árinu 1971 var námstíminn ákveðinn eitt ár. Reglugerðin tilgreindi bæði námsgreinar, próf og verklega þjálfun. Fyrir nemendur þýddi þetta lengra nám og ítarlegri kröfur um þann undirbúning sem þurfti áður en þeir gátu hafið störf sem sjúkraliðar.
Með reglugerð fyrir Sjúkraliðaskóla Íslands á árinu 1975 var síðan skýrt tekið fram að aðeins þau sem fengið hefðu löggildingu ráðherra mættu kalla sig sjúkraliða og starfa sem slík. Starfsheitið var ekki aðeins heiti á þeim sem höfðu lokið ákveðnu námi. Rétturinn til þess og starfsins var bundinn opinberri löggildingu. Það var mikilvæg vernd fyrir menntunina og stöðu þeirra sem höfðu aflað sér hennar.
Sakavottorðið hverfur og horft til áframhaldandi náms
Reglurnar um aðgang að náminu segja líka sína sögu. Samkvæmt reglugerðinni frá 1975 átti umsókn um skólavist að fylgja prófskírteini, læknisvottorð, sakavottorð og meðmæli frá vinnuveitanda eða skólastjóra. Það var því fleira en fyrri námsárangur sem umsækjendur þurftu að sýna upplýsingar um.
Á árinu 1983 breyttist þetta. Sakavottorðið hvarf úr upptalningunni og í stað meðmæla var óskað eftir umsögn. Læknisvottorðið var áfram áskilið. Fyrir umsækjendur þýddi breytingin að ekki þurfti lengur að leggja fram upplýsingar úr sakaskrá samkvæmt þessu ákvæði. Kröfurnar um hvaða upplýsingar fólk þyrfti að veita um sjálft sig við inngöngu í námið höfðu breyst.
Í sömu reglugerð var Sjúkraliðaskóla Íslands falið að annast skipulagða framhalds- og endurmenntun eftir þörfum. Fyrir starfandi sjúkraliða fólst í því mikilvæg viðurkenning, því menntun þeirra átti ekki að enda við útskrift. Skólanum var ætlað að skapa tækifæri til að bæta við þekkinguna og þróast áfram í faginu.
Mér finnst þessi síðari breyting sérstaklega athyglisverð. Hún sýnir að hugmyndin um sjúkraliðastarfið sem ævistarf, þar sem fólk getur haldið áfram að læra og vaxa, á sér langan aðdraganda.
Eigin lög og skýrari ábyrgð
Á árinu 1984 fengu sjúkraliðar sérstök lög um starfsréttindi sín og skyldur. Rétturinn til starfsheitisins og starfsins var bundinn leyfi og sérstaklega bannað að ráða fólk án tilskilins starfsleyfis sem sjúkraliða. Jafnframt voru lögfestar skyldur um viðhald þekkingar og þagnarskyldu. Stéttin hafði nú eigin lagabálk sem tryggði réttindi hennar og setti kröfur um faglega framkvæmd starfsins. Þetta var ekki upphaf allrar verndar starfsheitisins, því hún hafði þegar verið skýr í reglugerð. Mikilvægið fólst í því að starfsréttindi sjúkraliða fengu sérstakan lagagrundvöll.
Ábyrgðin var þó enn orðuð þannig að sjúkraliðar skyldu aðeins starfa undir stjórn og á ábyrgð hjúkrunarfræðings. Á árinu 1989 var þessu breytt. Þá var tekið fram að sjúkraliðinn bæri ábyrgð á störfum sínum gagnvart þeim hjúkrunarfræðingi sem stýrði viðkomandi stofnun, deild eða hjúkrunareiningu. Þetta var mikilvæg aðgreining. Hjúkrunarfræðingurinn fór áfram með stjórn, en ábyrgð sjúkraliðans á eigin störfum varð skýrari. Að vinna undir stjórn annars merkti ekki að eigin starfsábyrgð hyrfi. Fyrir sjúkraliða fólst þarna enn skýrari viðurkenning á þeirra hlutverki og ábyrgð innan hjúkrunarinnar.
Menntunin fær meira vægi við mat á verkefnum
Á árinu 2001 var í reglugerð lögð áhersla á að sjúkraliðar sinntu almennri og sérhæfðri umönnun og þeim hjúkrunarstörfum sem menntun þeirra og fagleg færni gerðu þeim kleift að sinna. Við mat á færni skyldi sérstaklega taka tillit til viðbótarmenntunar. Þarna var mikilvæg breyting frá þeirri framsetningu eldri reglugerða að telja nákvæmlega upp einstök verk. Menntunin og hæfnin fengu skýrara vægi við afmörkun starfsins. Fyrir sjúkraliða sem höfðu bætt við sig námi var þetta grundvöllur til að krefjast þess að sú þekking væri tekin með í reikninginn þegar verkefnum væri úthlutað.
Í reglugerðinni var einnig áskilið að auglýst væri eftir sjúkraliðum áður en aðrir væru ráðnir til tilgreindra sérhæfðra umönnunar- og hjúkrunarstarfa. Það var ekki einkaréttur á öllum umönnunarverkefnum, en það var skýr krafa um að leita fyrst eftir sjúkraliða við þessar ráðningar.
Fagleg ábyrgð og leiðsögn verða skýrari
Á árinu 2013 tóku sameiginleg lög um heilbrigðisstarfsmenn við af sérlögunum um sjúkraliða. Starfsréttindin hurfu ekki við það. Sjúkraliðar féllu undir sameiginlegan lagaramma löggiltra heilbrigðisstétta, með kröfum um menntun, fagmennsku og öryggi sjúklinga. Reglugerðin um sjúkraliða frá sama ári tengdi ábyrgð á eigin störfum við menntun, þjálfun og færni. Sjúkraliðanum bar jafnframt að þekkja fagleg takmörk sín og leita aðstoðar þegar þess þurfti. Þar var einnig sérstaklega fjallað um ábyrgð hans á hæfni og leiðsögn aðstoðarmanna og nema sem störfuðu undir hans stjórn. Fyrir sjúkraliðann sjálfan var þetta skýrari lýsing á því sem fagmennskan felur í sér. Að bera ábyrgð á eigin verkum, vita hvenær þarf að leita aðstoðar og geta miðlað þekkingu til annarra. Leiðsögnin fékk þannig skýran sess í reglunum um starfið.
Sérhæfing fær formlega viðurkenningu
Á árinu 2024 kom síðan mikilvægur áfangi fyrir sjúkraliða sem hafa aflað sér viðbótarmenntunar. Sérhæfður sjúkraliði var skilgreindur í reglugerð út frá að lágmarki 60 ECTS eininga fagdiplómanámi á kjörsviði hjúkrunar við viðurkenndan háskóla. Starfssvið hans skyldi byggjast á viðbótarmenntun og þjálfun. Einnig var orðunum „og ábyrgð“ bætt við ákvæðið um mat á faglegri færni. Viðbótarmenntunin átti því ekki aðeins að hafa vægi við mat á því hvað sjúkraliðinn kynni, heldur einnig við mat á ábyrgð hans.

Framtíðin er björt fyrir ört stækkandi hóp sjúkraliða með diplómapróf frá HA
Fyrir þau sem hafa lagt á sig frekara nám felst þýðingin í skýrari tengingu milli menntunar, verkefna og ábyrgðar. Þarna er formleg viðurkenning á sérhæfingu innan sjúkraliðastarfsins á möguleikanum til að þróast áfram án þess að yfirgefa eigin fagstétt. Reglugerðin ákveður ekki launin. Þess vegna þarf viðurkenningin að skila sér áfram í starfslýsingum, verkefnum og kjörum. Það er ekki nóg að menntunin sé viðurkennd á prófskírteininu. Hún þarf líka að nýtast á vinnustaðnum.
Réttindin þurfa að vera virt — á hverri vakt
Þegar ég les þessa sögu verður mér enn ljósara hvers vegna við þurfum að standa vörð um stöðu sjúkraliða. Að baki starfsheitinu liggja menntun, fagleg ábyrgð og lögbundin réttindi. Það er ekki heiti sem fólk getur tekið sér eftir hentugleika. Þess vegna þykir mér alvarlegt að Sjúkraliðafélaginu berist enn ábendingar um að lækna- og hjúkrunarnemar á Landspítala kynni sig sem sjúkraliða við sjúklinga, þótt þeir hafi ekki starfsleyfi sjúkraliða. Sambærilegar ábendingar hafa borist um sérhæfða starfsmenn og aðra sem eru kynntir eða skráðir sem sjúkraliðar án þess að hafa til þess réttindi.
Þetta er ólíðandi. Að nota starfsheiti sjúkraliða án tilskilins starfsleyfis er ólöglegt. Ákvæði 4. og 10. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn eru skýr um réttinn til starfsheitisins og bann við óheimilli notkun þess. Nám í læknisfræði eða hjúkrunarfræði veitir ekki eitt og sér starfsréttindi sjúkraliða. Það gerir ráðning sem sérhæfður starfsmaður ekki heldur.
Vaktaplan getur ekki veitt starfsleyfi.
Á þetta hefur margsinnis verið bent. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hefur komið því skýrt til skila að þessi notkun starfsheitisins sé óheimil. Samt berast félaginu áfram ábendingar um hana. Mér finnst fáheyrt að þurfa ítrekað að minna á að fólk megi ekki taka sér lögverndað starfsheiti sem það hefur ekki rétt til að nota. Þegar skýr fyrirmæli duga ekki þarf að horfa til eftirfylgninnar og vinnustaðamenningarinnar. Það er ekki nóg að senda út áréttingu ef framkvæmdin á deildunum breytist ekki. Stjórnendur þurfa að tryggja að starfsheiti séu rétt í samskiptum við sjúklinga, á upplýsingatöflum, nafnspjöldum og í skráningarkerfum. Þar sem misbrestur verður þarf að bregðast við og fylgja því eftir að hann endurtaki sig ekki.
Vinnustaðamenning Landspítala gagnvart sjúkraliðum þarf að breytast. Virðing fyrir stéttinni verður að birtast í því hvernig komið er fram við menntun hennar, faglegt mat og starfsréttindi. Sjúkraliðar eiga ekki að þurfa að verja starfsheitið sitt aftur og aftur á eigin vinnustað. Við eigum að taka vel á móti nemum og styðja þá í námi og starfi. En hluti af því að læra fagmennsku er að virða eigin mörk og starfsréttindi annarra. Það á að vera sjálfsagt að fólk kynni sig rétt og geri skýra grein fyrir hlutverki sínu. Í 22. gr. laga um réttindi sjúklinga er sérstaklega kveðið á um að heilbrigðisstarfsmenn sem annast sjúkling við komu á heilbrigðisstofnun kynni sig og starfssvið sitt. Sjúklingurinn á að geta treyst þeim upplýsingum.
Við eigum jafnframt að gæta þess að virðing fyrir sjúkraliðastarfinu ráðist ekki eingöngu af nýjum verkefnum eða sérhæfingu. Grunnhjúkrunin á að njóta virðingar, þekking sjúkraliða að nýtast og faglegt mat þeirra að hafa vægi. Við viljum að sjúkraliðar geti þróast í starfi og sinnt því vel, af ábyrgð, alúð og umhyggju. Þá þurfa þeir líka að finna að staðið sé með þeim og fagleg staða þeirra virt.
Þessi sögulega yfirferð hefur vakið hjá mér bæði stolt og metnað fyrir framhaldinu. En hún hefur líka styrkt þá sannfæringu mína að við megum ekki sætta okkur við að réttindi sem eru skýr í lögum verði óskýr í framkvæmd. Réttindin okkar eiga sér sögu. Þau eru ekki valkvæð og virðing fyrir þeim má ekki ráðast af því hver er á vakt.
Góða helgi!