Haustið fer af stað með krafti
Þá er fyrsta heila vinnuvikan eftir sumarleyfi að baki og það er óhætt að segja að starfsemin sé komin á fullt. Eins og gjarnan gerist eftir sumarfrí biðu okkar ýmis erindi og verkefni sem höfðu safnast upp og fyrstu dagarnir fóru því að hluta til í að vinda ofan af þeim, svara erindum og koma málum aftur á hreyfingu.

En samhliða því hefur margt annað gerst. Fundir hafa verið haldnir, stór hagsmunamál stéttarinnar verið rædd og línurnar fyrir haustið eru smám saman að skýrast. Og það er nóg fram undan.
Mikilvæg samtöl við stjórnvöld
Við höfum að undanförnu átt samtöl við stjórnvöld um ýmis mál sem snerta stöðu sjúkraliða og í vikunni fórum við jafnframt á góðan og gagnlegan fund með heilbrigðisráðherra.

Þar ræddum við meðal annars mönnun hjúkrunarheimila, stöðu sjúkraliða í heimahjúkrun og innleiðingu starfa fyrir sjúkraliða sem lokið hafa viðbótarmenntun á háskólastigi. Þetta eru mál sem félagið hefur unnið að um langt skeið. Við höfum ítrekað bent á að þegar stjórnvöld leita lausna á mönnunarvanda heilbrigðisþjónustunnar þurfi ekki aðeins að spyrja hvernig hægt sé að fá fleiri hendur
til starfa. Við þurfum líka að spyrja hvort við séum að nýta nægilega vel þann mannauð, menntun og reynslu sem þegar er til staðar. Þar eiga sjúkraliðar mikið inni.
Ráðherra tók vel undir sjónarmið félagsins og sýndi góðan skilning á stöðu stéttarinnar. Það var sérstaklega ánægjulegt að finna fyrir skilningi á því að aukin menntun sjúkraliða verður að skila sér í raunverulegum tækifærum til starfsþróunar. Ráðherra lagði jafnframt til að fulltrúar ráðuneytisins tækju þátt í næsta fundi um stöðu sérhæfðra sjúkraliða í heimahjúkrun. Það teljum við jákvætt skref. Góðir fundir skipta máli, en þeir eru auðvitað ekki markmiðið í sjálfu sér. Nú þarf að fylgja málunum eftir og vinna að því að samtalið skili sér í framkvæmd.
Menntunin þarf að njóta trausts
Menntamál sjúkraliða hafa einnig verið mikið til skoðunar hjá okkur, bæði fyrir og eftir sumarleyfi.

Sérstaklega höfum við rýnt framkvæmd raunfærnimats á sjúkraliðabraut og átt samskipti við þá aðila sem koma að náminu og matinu. Ég tel mikilvægt að halda tvennu til haga í þeirri umræðu. Raunfærnimat getur verið mjög góð leið til að viðurkenna þekkingu og reynslu fólks og greiða því leið inn í nám. En þegar um er að ræða nám sem leiðir til starfsleyfis löggiltrar heilbrigðisstéttar verður jafnframt að ríkja fullt traust um framkvæmdina.
Það þarf að vera skýrt hvaða hæfni er metin, á hvaða forsendum hún er metin og hvernig tryggt er að þeir sem ljúka náminu uppfylli þau hæfniviðmið sem gerð eru til sjúkraliða. Við höfum nú ákveðnar hugmyndir um leiðir sem við teljum geta styrkt framkvæmdina og aukið traust til hennar. Þær viljum við vinna áfram með hlutaðeigandi aðilum. Ég tel mikilvægt að við nálgumst það verkefni af yfirvegun. Markmiðið á ekki að vera að loka leiðum inn í sjúkraliðanámið heldur að tryggja að þær leiðir sem eru í boði séu faglegar, skýrar og njóti trausts. Það er hagsmunamál bæði nemenda, starfandi sjúkraliða og þeirra sem treysta á þjónustu okkar.
Blikur á lofti á vinnumarkaði
Fyrsti stjórnarfundur BSRB eftir sumarleyfi var einnig haldinn í vikunni og þar var farið yfir efnahagsmálin og stöðuna á vinnumarkaði. Sérstaklega var rætt um forsenduákvæði kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og þá óvissu sem staðan getur haft í för með sér. Þótt samningar okkar sjúkraliða séu á opinbera vinnumarkaðnum er ljóst að þróunin á almenna markaðnum hefur áhrif langt út fyrir hann. Við fylgjumst því vel með.
Á fundinum var einnig fjallað um vinnu að snemmtækri íhlutun þegar hætta er á að fólk missi starfsgetu eða detti út af vinnumarkaði og um samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins í þágu jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar. Þátttaka okkar í BSRB skiptir máli. Þar vinnum við með öðrum stéttarfélögum að sameiginlegum hagsmunum launafólks en tryggjum jafnframt að sjónarmið sjúkraliða fái að heyrast þegar stærri mál vinnumarkaðarins eru til umræðu.
Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki
Í vikunni birtist einnig grein eftir mig á Vísi undir fyrirsögninni „Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða“.

Tilefnið var staða á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi, þar sem nýútskrifaðir sjúkraliðar hafa ekki fengið ráðningu í sjúkraliðastöður þótt þeim hafi staðið til boða að vinna áfram við heimilið. Mér finnst málið draga fram ákveðna mótsögn sem við þurfum að ræða.
Við segjumst vilja fjölga fagmenntuðu starfsfólki. Við vitum að stór hópur sjúkraliða nálgast eftirlaunaaldur. Við tölum um mikilvægi nýliðunar og um þann mönnunarvanda sem heilbrigðis- og öldrunarþjónustan stendur frammi fyrir. Þá getur varla verið skynsamlegt að reikniforsendur í fjármögnun verði í framkvæmd til þess að nýútskrifaðir sjúkraliðar fái ekki ráðningu sem sjúkraliðar. Kerfin okkar eiga að styðja við markmiðin sem við setjum okkur – ekki vinna gegn þeim. Þessu máli verður áfram fylgt eftir.
Trúnaðarmennirnir okkar
Haustið verður einnig annasamt í trúnaðarmannastarfinu. BSRB heldur málþing trúnaðarmanna 3. september þar sem boðið verður upp á fjölbreytta fræðslu og samtal um verkefni trúnaðarmanna á breyttum vinnumarkaði.

Síðan kemur trúnaðarmannaráð Sjúkraliðafélags Íslands saman á Hótel Örk í Hveragerði dagana 24.–25. september. Ég hlakka mikið til þess fundar. Trúnaðarmennirnir okkar eru ein mikilvægasta tengingin milli félagsins og vinnustaðanna. Þeir vita hvað er að gerast, hvar skórinn kreppir og hvað þarf að skoða nánar.
Margar af þeim ábendingum sem síðar verða að stórum hagsmunamálum félagsins hefjast einmitt með samtali við trúnaðarmann eða félagsmann á vinnustað. Ég hvet því trúnaðarmenn okkar til að fylgjast vel með upplýsingum frá félaginu, skrá sig tímanlega og taka þátt.
Meira að frétta í vetur
Við ætlum jafnframt að leggja meiri áherslu á upplýsingagjöf til félagsmanna í vetur. Margt af starfi stéttarfélagsins fer fram án þess að það verði að sérstakri frétt. Að baki einu máli geta legið fundir, erindi, gagnaöflun og eftirfylgni yfir langan tíma. Við viljum gefa félagsmönnum betri innsýn í þessa vinnu og ætlum því meðal annars að senda regluleg fréttabréf þar sem sagt verður frá málum sem eru í vinnslu og hvernig þeim miðar.
Á sama tíma erum við að styrkja starfsemi skrifstofunnar og leitum nú að verkefnastjóra kjara- og réttindamála. Markmiðið er skýrt, að efla enn frekar þjónustu við félagsmenn og stuðning við trúnaðarmannakerfið okkar. Þannig leggst haustið fyrir mig.
Verkefnin eru mörg og sum þeirra flókin. Það verða eflaust bæði skref fram á við og einhverjar brekkur á leiðinni. En það er líka margt sem gefur tilefni til bjartsýni. Það skiptir máli að við höldum áfram að tala skýrt fyrir stöðu sjúkraliða, komum með lausnir og látum ekki hjá líða að minna á þá miklu þekkingu, reynslu og hæfni sem býr í stéttinni.
Við á skrifstofunni erum komin aftur á fullt – og ætlum að halda áfram að sækja fram.
Góða helgi, kæru félagar.
Sandra B. Franks
formaður Sjúkraliðafélags Íslands