Árangur sem við eigum saman
Undanfarna daga hef ég verið á kafi í sögu Sjúkraliðafélags Íslands vegna undirbúnings 60 ára afmælis félagsins í nóvember. Það hefur verið bæði gefandi og dálítið magnað að rifja upp viðfangsefnin og sjá hvernig eitt skref hefur leitt að öðru.

Réttindi sem við göngum að í dag og tækifæri sem nú standa sjúkraliðum til boða eiga sér oft langan aðdraganda. Þegar sagan er skoðuð í samhengi verður skýrt hversu mikil vinna og þrautseigja liggja að baki.
Í daglegu starfi er hugurinn yfirleitt við það sem þarf að gerast næst. Það bíða fundir, samningar sem þarf að fylgja eftir eða félagsmaður sem þarf aðstoð. Við gefum okkur því sjaldan tíma til að líta um öxl. Þessi yfirferð hefur gefið mér tækifæri til þess og minnt mig á hversu margt hefur áunnist.
Það liggur mér næst að fara yfir árin frá því ég tók við formennsku vorið 2018. Ég tók við góðu búi. Kristín Á. Guðmundsdóttir hafði þá leitt félagið í þrjá áratugi og fjölmargir félagsmenn og samstarfsfólk lagt félaginu lið. Þar hafði verið tekist á, réttindi unnist og menntun og fagleg viðurkenning sjúkraliða þokast áfram. Félagið á magnaða sögu, sem að hluta hefur nú þegar verið skrifuð og sögð. Við höfum síðan haldið áfram að bæta við þessa sögu. Í þessum föstudagspistli langar mig að taka ykkur með í stutta yfirferð um nokkra áfanga.
Betri kjör og styttri vinnutími
Kjör og fagleg staða sjúkraliða þurfa að þróast saman. Í samtölum við félagsmenn um land allt kom skýrt fram það stolt sem fólk bar til starfsins, en líka áhyggjur af álagi og mönnun. Sjúkraliðar vildu geta sinnt starfinu vel, haft af því mannsæmandi tekjur og enst í því án þess að ganga á heilsuna.
Einn stærsti áfanginn varð með kjarasamningunum árið 2020, þegar samið var um styttingu vinnutímans án launaskerðingar. Markmiðið var að vinnuframlag sem áður samsvaraði 80% vaktavinnu gæti talist fullt starf. Að baki lá löng samningalota og markviss, náin samvinna innan BSRB, með stuðningi félagsmanna.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, leiddi verkefnið og mér finnst mikilvægt að halda framlagi hennar og gildi þessa samstarfs til haga. Við náðum jafnframt Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga að borðinu og sameinuðum krafta okkar. Að verkefninu komu einnig ASÍ og BHM og samstarfið náði til ríkisins, Reykjavíkurborgar, sveitarfélaganna og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Að ná samkomulagi um svo umfangsmiklar breytingar þvert á ólíka samninga og vinnustaði var í reynd þrekvirki. Breytingarnar snerust um líf fólks. Markmiðið var að vernda heilsu vaktavinnufólks, gefa því meira svigrúm til hvíldar og fjölskyldulífs og gera því kleift að vera í hærra starfshlutfalli. Fyrir okkur sjúkraliða var þetta líka mikilvægt jafnréttismál.
Innleiðingin hófst árið 2021, hjá dagvinnufólki 1. janúar og vaktavinnufólki 1. maí. Þá tók við mikil vinna á hverjum vinnustað, þar sem þátttaka starfsfólks og góð stjórnun skiptu sköpum. Framkvæmdin hefur verið misjöfn og enn þarf að sníða af vankanta. Sá lærdómur fylgir okkur áfram að samningsniðurstöðu þarf að fylgja eftir þar til hún skilar sér í daglegu lífi félagsmanna.
Fagráðin opnuðu mikilvægar dyr
Frá því ég tók við formennsku árið 2018 lagði ég áherslu á að sjúkraliðar fengju formlega aðkomu að faglegri umræðu og stefnumótun innan heilbrigðisstofnana. Félagið fylgdi málinu eftir gagnvart stjórnvöldum og lagði tillögur fyrir Alþingi um þverfagleg fagráð. Árið 2020 náðist mikilvægur áfangi þegar ákvæðum um fagráð heilbrigðisstofnana var breytt. Þar með opnaðist formlegur vettvangur fyrir rödd sjúkraliða innan stofnananna sjálfra.
Sjúkraliðar þekkja daglegt líf skjólstæðinga og sjá hvar þjónustan gengur vel og hvar þarf að gera betur. Sú þekking á að hafa vægi þegar ákvarðanir eru teknar um þjónustuna og skipulag hennar. Með aðkomu að fagráðunum fengu sjúkraliðar nýja leið til að koma reynslu sinni og faglegum sjónarmiðum að.
Stéttin stóð vaktina
Þessi ár voru jafnframt ár heimsfaraldursins. Sjúkraliðar stóðu vaktina við gríðarlegt álag og fjölmargir skráðu sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Ég tók sjálf vaktir á Covid-lungnadeild Landspítala. Framlag sjúkraliða á þessum tíma á að vera skráð í söguna og reynslan að hafa vægi þegar rætt er um kjör og starfsumhverfi.
Áralöng krafa verður að diplómanámi
Diplómanámið við Háskólann á Akureyri liggur mér sérstaklega nærri. Þegar ég tók við áttu kröfur um frekara nám fyrir sjúkraliða sér langan aðdraganda. Félagið lagði vinnu í undirbúninginn, þrýsti á um fjármögnun og fylgdi málinu eftir gagnvart ráðherrum, þingmönnum og háskólanum, meðal annars í tengslum við kjaraviðræðurnar. Haustið 2021 hófst námið og í júní 2023 útskrifuðust fyrstu tuttugu sjúkraliðarnir.
Þar með hafði opnast ný leið til starfsþróunar innan eigin fags. Síðan hefur verið unnið að reglugerðarbreytingum, starfslýsingum og launaröðun sérhæfðra sjúkraliða. Ný störf hafa orðið til, þótt framkvæmdin gangi enn of hægt hjá ýmsum vinnuveitendum. Sjúkraliðar sem leggja á sig frekara nám eiga að fá tækifæri til að nýta þekkinguna og fá hana metna til launa. Því höldum við áfram að fylgja eftir.
Símenntun og framgangur í starfi
Samhliða diplómanáminu höfum við unnið að því að símenntun og starfsreynsla skili félagsmönnum auknum möguleikum. Í stofnanasamningum hefur verið samið um fleiri símenntunarþrep, bættan framgang og skýrari viðurkenningu á ábyrgð og sérverkefnum. Samstarfið við Framvegis og stuðningur úr sjóðum félagsins hafa jafnframt auðveldað félagsmönnum að sækja sér fræðslu. Það skiptir máli að hægt sé að bæta við þekkingu sína samhliða vaktavinnu og fjölskyldulífi og að sú viðleitni sé metin.
Réttlátara mat á störfum sjúkraliða
Starfsmat, launajöfnun og virðismat hafa tekið æ stærri sess í kjarabaráttunni. Þar höfum við lagt áherslu á að ábyrgð sjúkraliða og þær kröfur sem starfið gerir verði sýnilegar í launaröðun. Árið 2025 var samið um að færa sjúkraliða hjá sveitarfélögunum inn í starfsmatskerfið og niðurstaða fékkst um leiðréttingar á röðun tiltekinna starfsheita hjá ríkinu. Í sumar náðist síðan áfangasamkomulag um þrjá viðbótarlaunaflokka fyrir sjúkraliða í tilteknum störfum hjá sveitarfélögunum. Vinnan við virðismat starfa sjúkraliða hjá ríkinu heldur áfram. Þessi verkefni snúast um að leiðrétta vanmat á störfum stéttar sem að stærstum hluta er skipuð konum. Þarna þarf nákvæma gagnaöflun og úthald til að þekking og ábyrgð fái það vægi sem þeim ber.
Sýnileiki og nýliðun
Sýnileiki sjúkraliða hefur verið mér mikið hjartans mál. Átakið #meðhjartaðístarfinu árið 2019 og Landsliðsherferðin á síðasta ári eiga það sameiginlegt að sjúkraliðar sjálfir eru í aðalhlutverki. Með myndböndum, skólaheimsóknum, þátttöku í Verkiðn og kynningarvefnum höfum við sýnt hvað starfið felur í sér og kynnt námið fyrir nýjum hópum.
Jafnframt höfum við aflað gagna um líðan félagsmanna, álag og brotthvarf úr starfi. Þær upplýsingar hafa styrkt kröfur okkar um betri mönnun og aðstæður. Kynningarstarfið þarf að haldast í hendur við kjör og starfsþróun svo fólk sjái sér framtíð í faginu. Við höfum einnig lagt áherslu á stuðning við nemendur og sjúkraliða með annað móðurmál en íslensku, meðal annars með aðgangi að íslenskunámi.
Samstarf sem styrkir röddina
Samstarf við aðrar heilbrigðisstéttir hefur eflst. Við höfum unnið með félögum lækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra að sameiginlegum málflutningi um heilbrigðisþjónustuna. Félagið hefur jafnframt sent umsagnir til Alþingis og mætt fyrir þingnefndir til að fylgja eftir kröfum um fjármögnun og mönnun og koma sjónarmiðum sjúkraliða að stefnumótun.
Alþjóðlega samstarfið hefur líka gefið okkur mikilvægan samanburð og tengsl. Árið 2025 tóku fulltrúar félagsins í fyrsta sinn þátt í fundi í Evrópuþinginu um manneklu í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þar kom skýrt fram hversu mörg viðfangsefni okkar eru sameiginleg þvert á landamæri.
Öflugt félag í daglegu starfi
Innan félagsins hefur verið unnið að stefnumótun, fræðslu trúnaðarmanna og bættri upplýsingagjöf. Nýr vefur og rafræn þjónusta hafa auðveldað aðgengi að upplýsingum og föstudagspistlarnir, sem ég hóf að skrifa reglulega árið 2022, hafa orðið hluti af samtalinu við félagsmenn. Sjúkraliðadagurinn hefur jafnframt skapað mikilvægan vettvang fyrir faglega umræðu og samveru.
Nú höfum við einnig hafið útsendingar á rafrænum fréttabréfum til félagsmanna. Þar segjum við frá verkefnum félagsins og þeirri vinnu sem stendur yfir hverju sinni, svo félagsmenn geti fylgst enn betur með starfinu. Þessu ætlum við að halda áfram ef vilji félagsmanna stendur til þess. Á bak við allt þetta stendur daglega starfið á skrifstofunni og framlag trúnaðarmanna, svæðisdeilda og annarra kjörinna fulltrúa. Þar er veitt ráðgjöf, farið yfir laun og réttindi, unnið úr styrkumsóknum og félagsmönnum fylgt í gegnum erfið, flókin réttindamál sem stundum rata inn í dómsali. Fyrir þann sem leitar til félagsins getur lausn á einu slíku máli skipt sköpum.
Orlof og hvíld skipta máli
Á þessum árum höfum við einnig eflt orlofsþjónustu félagsins og endurnýjað eignir þess. Við keyptum íbúðir í Efstaleiti og við Hallgerðargötu og seldum íbúðina í Safamýri. Í Munaðarnesi bættum við okkur húsi og keyptum síðan annað nýtt. Þannig höfum við aukið framboðið og gefið félagsmönnum fleiri valkosti þegar kemur að því að skipuleggja orlofið.
Við bjóðum einnig flugmiða á afslætti og leggjum áherslu á að félagsmenn geti notið orlofsins síns á viðráðanlegum kjörum. Fyrir fólk í krefjandi starfi skiptir miklu að fá góða hvíld, skipta um umhverfi og eiga ánægjulegar stundir með sínum nánustu.
Við höldum áfram að skrifa söguna
Þegar ég lít yfir þessi ár finn ég fyrir stolti og þakklæti. Áfangarnir bera vitni um vinnu margra og um félag sem hefur haldið málum til streitu, jafnvel þegar leiðin hefur reynst löng. Ég er þakklát samstarfsfólkinu og öllum þeim félagsmönnum sem hafa miðlað reynslu sinni, gefið af tíma sínum og lagt baráttunni lið.
Við eigum enn mikið verk fyrir höndum. Kjörin þurfa að batna, sjúkraliðum að fjölga og menntun þeirra að njóta sín betur í heilbrigðisþjónustunni. En það er gott að sjá hvað okkur hefur tekist í sameiningu. Sú reynsla gefur kraft til að halda áfram og bæta næstu köflum við sögu félagsins.
Góða helgi