Trúnaðarmannaráðsfundur
Trúnaðarmannaráðsfundur Sjúkraliðafélags Íslands verður haldinn dagana 24.–25. september 2026 á Hótel Örk í Hveragerði. Fundurinn er sameiginlegur vettvangur trúnaðarmanna félagsins. Þar komum við saman til að miðla reynslu, ræða stöðu mála á vinnustöðum, samræma áherslur og móta næstu skref í kjaramálum og faglegri þróun.
Markmiðið er að styrkja heildarsýn félagsins, efla samvinnu og tryggja að ákvarðanir byggist á raunverulegri stöðu sjúkraliða um land allt. Kjörnum og skipuðum trúnaðarmönum er boðið til fundarins. Jafnframt eru fulltrúar starfsnefnda, félagsstjórn, formenn deilda og kjaramálanefnd boðuð, og taka þátt í fundinum enda eru sinna þessir aðilar mikilvægum trúnaðarstörfum félagsins.
Tímasetningar
Fimmtudagur 24. september
Fundur hefst kl. 13:00
Föstudagur 25. september
Fundi lýkur kl. 12:00
Gist verður eina nótt og haldið heim að fundi loknum.
Rútuferð
Boðið verður upp á rútuferð:
- Brottför frá Grenásvegi 16 kl. 11:00 fimmtudaginn 24. september
- Heimferð frá Hveragerði kl. 13:00 föstudaginn 25. september