Beint í efni

Vinna um jól og áramót 2026

Við gerð vaktskrár fyrir jól og áramót er gott að þekkja stórhátíðarálag, vægi vinnustunda og reglur um vinnuskil. Hér er einnig yfirlit yfir desemberuppbót 2026.

10. nóvember 2026

Stórhátíðarálag og vægi vinnustunda 

Á stórhátíðardögum er greitt 120% vaktaálag. Á aðfangadag og gamlársdag gildir 165% álag frá kl. 16.00 til 24.00, og á jóladag og nýársdag frá kl. 00.00 til 08.00. Brot úr klukkustund greiðist hlutfallslega. 

Vinnuskyldustundir með 120% álagi hafa vægið 1,05 frá kl. 08.00 til 24.00 og 1,2 frá kl. 00.00 til 08.00. Stundir með 165% álagi hafa vægið 1,2. 

Vaktskrá og vinnuskil 

Ef starfsmaður á vakt samkvæmt skipulagðri vaktskrá þegar stofnun er lokuð á sérstökum frídegi eða stórhátíðardegi fær hann frí sem nemur vaktinni í stað lækkunar vinnuskyldu. Sá sem vill safna upp vinnuskilum vegna slíkra daga þarf að láta yfirmann vita áður en vaktskrá er lögð fram. 

Aukavakt eða breyting á vaktskrá 

Mikilvægt er að greina á milli aukavaktar umfram vinnuskyldu og breytingar á skipulagðri vaktskrá. Breyting á vaktskrá þarf samþykki starfsmanns; breytingargjald ræðst af fyrirvara og kjarasamningi.  

Vaktahvati miðast við skipulagðar vaktir innan vinnuskyldu og aukavakt fellur ekki sjálfkrafa undir hann.  

Óski starfsmaður eftir því að safna upp vinnuskilum vegna sérstakra frídaga og stórhátíðardaga skal hann tilkynna sínum yfirmanni um það fyrir framlagningu vaktskrár þegar ávinnsla á sér stað. 

Desemberuppbót 2026 

Upphæðir fyrir fullt starf eru þessar: 

Ríkið  114.000 kr. 
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu 114.000 kr. 
Sveitarfélögin 145.000 kr.
Reykjavíkurborg 127.000 kr.  

Hafðu samband við okkur á skrifstofuna, eða sendu póst á slfi@slfi.is ef þú ert óviss um skráningu eða greiðslu vaktar.