Aðalfundur Svæðisdeildar Vesturlands
verður haldinn 13. nóvember á Bárugötu 21, Akranesi og hefst klukkan 18. Auglýst er eftir framboðum til stjórnarsetu.
Mætum og sýnum samstöðu!
Svæðisdeild Vesturlands býður félagsmenn á Vesturlandi hjartanlega velkomna á aðalfund deildarinnar.
Nú er kjörið tækifæri til að koma saman, fara yfir starfið og eiga góða kvöldstund.
📅 Hvenær: Föstudaginn 13. nóvember 2026 kl. 18:00 – 21:00
📍 Hvar: Húsnæði Roð veitinga, Bárugötu 21, Akranesi
Á fundinum verða hefðbundin aðalfundarstörf og stjórnarkjör. Við hvetjum alla félagsmenn til að láta sig málin varða og mæta. Senda má framboð og aðrar tillögur á netfangið: baza@internet.is.
Hildigunnur Einarsdóttir býður sig fram til stjórnarsetu og er Fanney Reynisdóttir að hætta í stjórn eftir nokkurra ára setu og þökkum við henni kærlega fyrir hennar framlag síðustu ár.
✨ Að fundi loknum:
Félagið býður upp á léttar veitingar, barinn verður opinn og trúbadorinn Orri Steinn mætir með gítarinn til að halda uppi fjörinu! 🎶
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest! 💙
– Stjórn Svæðisdeildar Vesturlands.
