Þetta gerist ekki af sjálfu sér
Fyrir skemmstu tók Sjúkraliðafélag Íslands á móti sjúkraliðum á Landspítala sem tóku þátt starfsþróunarári sjúkraliða á Landspítala. Þar var meðal annars boðið upp á kynningu á félaginu, réttindum sjúkraliða, hlutverki félagsins og mikilvægi þess að sjúkraliðar þekki stöðu sína, rödd og réttindi innan heilbrigðiskerfisins.

Það var sérlega ánægjulegt að fá þennan hóp í hús og finna þá jákvæðu orku sem fylgir því þegar sjúkraliðar fá markvissan stuðning, fræðslu og tækifæri til að styrkja sig faglega í starfi. Ekki síður var ánægjulegt að sjá hugmynd sem lengi hefur verið rædd og fylgt eftir af Sjúkraliðafélaginu verða að veruleika á Landspítala.
Góðir hlutir gerast hægt
Það er mér minnisstætt að eitt af mínum fyrstu verkefnum sem formaður Sjúkraliðafélagsins var að leggja það til við þáverandi framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítala að sjúkraliðum yrði boðið upp á starfsþróunarár, líkt og tíðkast hafði fyrir hjúkrunarfræðinga við spítalann. Rökin voru skýr. Ef starfsþróunarár er talið mikilvægt fyrir hjúkrunarfræðinga, þá á það ekki síður við um sjúkraliða. Sjúkraliðar sinna ábyrgðarmiklum störfum við krefjandi aðstæður. Þeir eru í daglegri nálægð við sjúklinga, taka þátt í hjúkrun, umönnun, eftirliti, samskiptum, endurhæfingu og fjölbreyttri þjónustu sem skiptir miklu máli fyrir gæði heilbrigðisþjónustunnar. Það ætti því að vera sjálfsagt að sjúkraliðar fái skipulagðan stuðning, fræðslu og leiðsögn við upphaf starfs, rétt eins og aðrar fagstéttir innan spítalans.
Í upphafi var ljóst að verkefnið yrði ekki alveg einfalt í framkvæmd. Ein af áskorununum var að sjúkraliðar útskrifast tvisvar á ári af sjúkraliðabraut og því þurfti að finna fyrirkomulag sem hentaði bæði náminu, starfinu og starfsemi spítalans. Sú staðreynd breytti þó ekki grundvallaratriðinu, að þörfin var til staðar og hugmyndin var bæði réttmæt og tímabær. Það tók samtöl, fundi og eftirfylgni að koma málinu áfram. Framkvæmdin reyndi vissulega á þolinmæðina á köflum, en það er líka ljóst að góðir hlutir gerast stundum hægt. Mikilvæg mál þurfa að fá tíma til að þroskast, finna réttan farveg og rétta fólkið til að leiða þau áfram.
Á hrós skilið
Nú hefur tekist að móta leið sem virkar. Þar ber sérstaklega að nefna framlag núverandi framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítala, Ólafs G. Skúlasonar, sem hefur sýnt verkefninu
skilning, áhuga og lausnamiðaða nálgun.

Hann hefur fundið raunhæfa útfærslu á starfsþróunarári fyrir sjúkraliða og átt mikilvægan þátt í að láta þessa löngu ræddu hugmynd verða að veruleika. Fyrir það á hann hrós skilið. Starfsþróunarár sjúkraliða er mikilvæg viðurkenning á faglegu hlutverki stéttarinnar og skýr skilaboð um að framlag sjúkraliða skipti máli. Verkefnið styrkir nýja sjúkraliða í starfi, eykur öryggi þeirra, styður við starfsánægju og getur haft jákvæð áhrif á nýliðun og festu í starfi. Þessi framþróun skiptir líka máli fyrir sjúklinga.
Þegar sjúkraliðar fá góða fræðslu, leiðsögn og stuðning frá upphafi verður þjónustan markvissari, öruggari og faglegri. Það er ekki aðeins ávinningur fyrir sjúkraliðana sjálfa, heldur fyrir deildirnar, samstarfsfólk, Landspítala og heilbrigðisþjónustuna í heild.
Það var því bæði gleðilegt og táknrænt fyrir Sjúkraliðafélagið að taka á móti sjúkraliðahópnum. Þar mátti sjá að hugmynd sem kviknaði fyrir mörgum árum, og hefur verið fylgt eftir með samtali og þrautseigju, er nú orðin að raunverulegu verkefni. Við hjá Sjúkraliðafélaginu fögnum þessum áfanga innilega. Um leið er mikilvægt að horfa fram á veginn og tryggja að starfsþróunarár sjúkraliða verði ekki tímabundið verkefni, heldur fastur og öflugur hluti af starfsumhverfi sjúkraliða á Landspítala. Sjúkraliðar eiga það skilið. Sjúklingar njóta góðs af því. Og heilbrigðiskerfið verður sterkara fyrir vikið.
Sjúkraliðafélagið mun áfram standa vörð um starfsþróun, réttindi og faglega stöðu sjúkraliða. Þessi áfangi sýnir að rödd stéttarinnar skiptir máli, og að þegar henni er fylgt eftir af festu, þolinmæði og góðu samstarfi getur hún skilað raunverulegum breytingum.
Sandra B. Franks, formaður