Starfshópur skipaður sem vinna á tillögur um starfssvið sjúkraliða til framtíðar
Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, verður formaður starfsshóps sem heilbrigðisráðherra hefur skipað, sem á að vinna tillögur um mönnun, menntun og starfssvið sjúkraliða til framtíðar. Verkaskipting heilbrigðisstétta og nýting á hæfni sjúkraliða er meðal þess sem starfshópurinn á að taka til skoðunar.

Til að styrkja þjónustu við sjúkraliða og bæta samstarf heilbrigðisstétta þurfa starfslýsingar, mönnun og aðgangur að skráningarkerfum að endurspegla betur menntun, hæfi og faglega ábyrgð sjúkraliða.
Nám sjúkraliða hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár, rétt eins og nám annarra heilbrigðisstétta. Hins vegar hefur þekking á því hvað sjúkraliðar kunni og geta tekið að sér ekki skilað sér nægilega vel inn í heilbrigðiskerfið.
Í skipunarbréfi starfshópsins segir að honum sé ætlað að meta hlutverk og verksvið sjúkraliða að loknu grunnnámi og viðbótarfagdiplómanámi.
Hópurinn á jafnframt að leggja fram tillögur um verkaskiptingu og samstarf heilbrigðisstétta svo þekking og hæfni sjúkraliða nýtist sem best, með gæði og öryggi þjónustunnar að leiðarljósi.
Þá á að kanna möguleika á fleiri kjörsviðum í fagdiplómanámi sjúkraliða og hvernig efla megi hlutverk þeirra sem lokið hafa viðbótarmenntun.