Sjúkraliðanám – traust fagmenntun fyrir framtíð heilbrigðisþjónustunnar
Sjúkraliðar gegna lykilhlutverki í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Þeir starfa náið með fólki á öllum aldri, sinna hjúkrun, endurhæfingu og forvörnum og þurfa daglega að bregðast við fjölbreyttum og oft krefjandi aðstæðum. Að baki starfinu liggur umfangsmikið og markvisst fagnám þar sem fræðileg þekking, verkleg færni og mannleg samskipti haldast í hendur.

Fræðileg þekking og umfangsmikið starfsnám
Sjúkraliðanám er samkvæmt núgildandi brautarlýsingu 206 framhaldsskólaeiningar með námslok á þriðja hæfniþrepi. Námið tekur að jafnaði þrjú ár, eða sex annir, og skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og sérgreinar sjúkraliðabrautar.
Nemendur leggja meðal annars stund á hjúkrun, líffæra- og lífeðlisfræði, sjúkdómafræði, lyfjafræði, sýklafræði, næringarfræði, sálfræði, samskipti og siðfræði. Upplýsingatækni og meðferð sjúkraskráa eru einnig hluti námsins, auk íslensku, ensku, stærðfræði, raungreina og annarra almennra greina.
Þessi breidd er nauðsynleg. Sjúkraliðastarfið krefst þess að starfsmaður geti metið aðstæður, forgangsraðað verkefnum, greint hvaða hjúkrunarmeðferðir eiga við og framfylgt hjúkrunaráætlun af öryggi og fagmennsku. Jafnframt þarf hann að geta miðlað upplýsingum skýrt, átt fagleg samskipti við skjólstæðinga og aðstandendur og tekið virkan þátt í þverfaglegu samstarfi.
Verkleg þjálfun er stór hluti námsins. Vinnustaðanám er 24 einingar og fer fram á heilbrigðisstofnunum undir leiðsögn sjúkraliða og stjórnenda. Að auki ljúka nemendur sextán vikna starfsþjálfun sem samsvarar 27 einingum. Alls eru því 51 eining, nær fjórðungur námsins, bundnar við vinnustaðanám og starfsþjálfun.
Þar yfirfæra nemendur fræðilega þekkingu yfir í raunverulegar aðstæður, kynnast vaktaskipulagi og þjálfast í störfum sjúkraliða. Þeir setja sér fagleg og persónuleg markmið, færa í ferilbók og fá reglulega leiðsögn og mat á hæfni sinni og framförum. Markmiðið er að nemandinn verði fær um að axla ábyrgð, sýna sjálfstæði og takast á við margbreytileg verkefni innan heilbrigðisþjónustunnar.
Fagleg dómgreind, ábyrgð og umhyggja
Sjúkraliðanám þjálfar faglega dómgreind, sjálfstæði og gagnrýna hugsun. Nemendur læra að afla sér fræðilegra upplýsinga, meta þær með gagnrýnum hætti og nýta við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar. Þeir þjálfast í að setja sér markmið, ígrunda eigin vinnubrögð og miðla upplýsingum skýrt til skjólstæðinga, aðstandenda og samstarfsfólks.
Í lokaverkefni samþætta nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa öðlast. Þar reynir á fagleg vinnubrögð, sjálfstæða hugsun, rökstuðning, upplýsingalæsi og siðferðilega ábyrgð. Námið undirbýr þá þannig undir að takast á við breytingar, tileinka sér nýjungar og vinna markvisst að eigin starfsþróun.
Samskipti og siðferðisvitund eru rauður þráður í öllu náminu. Nemendur læra að sýna faglega umhyggju, virða þagnarskyldu og mæta hverjum einstaklingi út frá þörfum hans, aðstæðum og sjálfsákvörðunarrétti. Virðing fyrir mannréttindum, jafnrétti og ólíkum bakgrunni fólks er órjúfanlegur hluti þeirrar fagmennsku sem starfið krefst.
Að lokinni brautskráningu getur nemandi sótt landlækni um starfsleyfi og öðlast rétt til að nota starfsheitið sjúkraliði og starfa sem slíkur á Íslandi. Starfsheitið er lögverndað, sem þýðir að enginn annar en sjúkraliði má kalla sig sjúkraliða. Námið veitir jafnframt traustan grunn fyrir frekara nám og fjölbreytta starfsþróun innan heilbrigðisvísinda.
Sjúkraliðanám er yfirgripsmikið fagnám sem undirbýr fólk fyrir ábyrg og krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir. Þegar rætt er um framtíð heilbrigðisþjónustunnar þarf að horfa til þessarar menntunar, þeirrar hæfni sem hún skapar og þeirra tækifæra sem felast í að nýta krafta sjúkraliða til fulls. Þar fara saman ábyrgð, alúð og umhyggja – og traust fagmennska sem íslensk heilbrigðisþjónusta þarf á að halda.
Sandra B. Franks formaður